Róm og Gríska eyjahafið 9. – 23. júní 2025.

Flogið til Rómar með Icelandair. Gistum í fjórar nætur í Róm og förum síðan í 10 nátta siglingu með NCL Epic þar sem komið er við á Santorini, Mykonos, Aþenu og Corfu í Grikklandi, Valetta á Möltu, Messina á Sikiley, Napolí og Liveorno á Ítalíu áður en við komum til Civitavecchia, hafnarborgar Rómar. Þar förum við frá borði, beint út á flugvöll og fljúgum heim með Icelandair.

Glæsiskipið Norwegian Epic

Norwegian Epic er 155,873 brúttótonn, 329 metrar á lengd og tekur 4.100 farþega. Áhöfnin er 1.753 og ganghraði er 20 hnútar. Epic er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.

Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa er 775.000 og 650.000 í innklefa

Einn í svalaklefa 1.050.000, einn í innklefa 830.000

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, tíu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”.Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.

 

Matarpakkinn: Út að borða á sérstöku veitingastöðunum: Tvisvar sinnum fyrir gestir í svalaklefi og einu sinni fyrir gestir í innklefar og stúdíóklefar.

WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.

Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir. Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.

EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

9. júní – mánudagur – Keflavík – Róm

Flogið með Icelandair til Rómar. Ekið sem leið liggur upp á hótelið þar sem við gistum í fjórar nætur.

10. og 12. júní – þriðjudagur til fimmtudagur – Róm

Notum þessa þrjá daga til að skoða Róm, enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Fyrsta daginn fer fararstjóri í sex tíma gönguferð um Róm með þá sem það vilja.

13. júní – föstudagur – Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um kl.10:30 og ekið til Civitavecchia. Epic leggur úr höfn klukkan 17:00.

Epic Aqua

14. júní – laugardagur – Á siglingu

Á siglingu allan daginn og nóg að gera um borð, skoða skipið, liggja í sólbaði eða bara gera eitthvað annað skemmtilegt.

15. júní – sunnudagur – Santorini

Komið til grísku eyjarinnar Santorini kl 14:00 og leggjum í hann á ný kl 22:00. Skoðum Fira eða kíkjum í einhvern annan bæ á eynni.

16. júní – mánudagur – Mykonos

Komum til Mykonos kl 08:00 og farið á ný kl 20:00. Skemmtilegur lítill bær með þröngum götum og mjög gaman að ganga þar um.

17. júní – þriðjudagur – Aþena

Verðum í höfuðstað Grikklands á þjóðhátíðardaginn. Leggjum að bryggju í Pireus, hafnarborg Aþenu, kl 06:00 og leggjum í hann á ný kl 15.00. Akropolis, Plaka eða eitthvað sem tengist Ólympíuleikum. Nóg að skoða hér.

18. júní – miðvikudagur – Corfu

Komið til eyjarinnar kl 12:00 og farið á ný kl 19:00. Gaman að rölta hér um, fara upp í gamla kastalann og kíkja yfir svæðið.

19. júní – fimmtudagur – Valletta

Þá erum við komin til enn einnar eyjarinnar og að þessu sinni Möltu. Leggjum að bryggju kl 13:30 og förum á ný kl 22:00. Skemmtileg eyja með mjög fallegu hafnarsvæði og skemmtilegum miðbæ.

20. júní – föstudagur – Messina

Komum til Sikileyjar kl 08:00 og förum á ný kl 18:00 og siglum þá um Messinasundið.

21. júní – laugardagur – Napolí

Komum hér kl 06:30 og förum á ný kl 16:15. Fyrir þá sem ekki hafa komið til Pompeii þá er það mjög áhugavert. Ítalir segja að Margareta pizzan hafi fyrst verð gerð hér og um að gera að smakka.

22. júní – sunnudagur – Livorno

Komið kl. 09:00 og farið þaðan kl. 20:30. Flórens, Pisa (skakki turninn) og Cinque Terra eru meðal þess sem áhugavert er að skoða hér. Einnig gaman að labba um Livorno, fara í siglingu um síkin eða á markaðinn.

23. júní. Siglingu lýkur

Komum til Civitavecchia kl 06:15 förum beinustu leið á flugvöllinn og fljúgum heim með Icelandair og lendum í Keflavík 18:15

Fararstjóri:

Skúli Unnar Sveinsson - FararstjóriFararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.

Epic Burn the Floor
Epic Balcony State room
Epic Climbing Wall Couple
Epic O Sheehans
Epic Le Bistro
Epic Moderno
Epic Courtyard
Epic Fitness
Epic Atrium Café
Epic Inside State room
Epic Aqua Park Family Splash
Epic Aqua
0Epic The Manhattan Room
Epic Ice Bar
Epic Deluxe Owners Suite Living Room
Epic Ultra Lounge
Norwegian - Epic
Epic spice