Siglt frá Barcelona til Feneyjar. Brottför 02. maí – heimkoma – 17. maí 2025

Flogið til Barcelona með Icelandair og gist þar í tvær nætur. Förum síðan í 11 nátta siglingu með NCL Breakaway þar sem komið er við á Mallorka, Cannes í Frakklandi, Livorno, Róm og Napolí á Ítalíu, Messina á Sikiley, Valletta á Möltu, Corfú í Grikklandi, Dubrovnik og Split í Króatíu áður en leiðin liggur til Feyneyja, en lagt er að bryggju í Triesti og ekið þaðan til Feneyja þar sem við gistum í tvær nætur. Síðan er flogið heim KLM og Icelandair með millilendingu í Amsterdam.

Glæsiskipið Norwegian Breakaway

Norwegian Breakaway var tekið í gegn 2020, en það var smíðað árið 2013. Það er tæplega 146.000 brúttótonn, 326 m á lengd og 52 metra breitt. Farþegar geta verið 3.903 og áhöfnin telur 1.657 og siglingarhraði er 23 hnútar. Um borð eru um 10 veitingastaðir, mörg kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur um 800 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann (miðað við að tveir séu saman í klefa) í svalaklefa 720.000 kr. og verð á mann í innklefa 630.000 kr.

Verð í svalaklefí – einbýli – 910 000 kr.

Verð í innklefi – einbýli – 800 000  kr.

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.

Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”.

Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.

Matarpakkinn: Út að borða á sérstöku veitingastöðunum: tvisvar sinnum fyrir gestir í svalaklefi og einu sinni fyrir gestir í innklefar og stúdíóklefar.

WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.

Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir. Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.

EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

2. maí – föstudagur – Keflavík – Barcelona

Flogið með Icelandair til Barcelona þar sem við gistum í tvær nætur.

3. maí – laugardagur –  Barcelona

Um að gera að nota daginn vel til að skoða þessa skemmtilegu borg því af nógu er að taka.

4. maí – sunnudagur – Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um hádegi og ekið niður á höfn þar sem Brakaway bíður og leggur úr höfn klukkan 17:00.

5. maí – mánudagur – Palma, Mallorka

Þá erum við komin til Palma, höfuðborgar Balearik eyjaklasans útifyrir austurströnd meginlands Spánar. Hér er hægt að skoða dómkirkjuna, fara í gömlu lestina til Soller, skella sér á ströndina í Santa Ponsa svo ekki sé mynnst á dropasteinhellana. Komið kl 07:00 og farið kl 15:00.

6. maí – þríðjudagur – Cannes í Frakklandi

Vörpum ankerum kl 10:00 úti fyrir ströndum frönsku Ríverunnar. Léttum þeim síðan á ný kl 20:00. Cannes er fallegur bær, hægt að máta hendurnar við hendur þekktra leikara við sýningarhöllina, kíkja í gluggana á dýru og flottu búðunum eða fá sér kaffibolla á einhverju hinna fjöglmörgu kaffihúsa.

7. maí – miðvikudagur – Livorno

Nú erum við komin í Toskana héraðið norðarlega á Ítalíu. Komum þangað kl 06:00 og förum aftur kl 19:00. Héðan er stutt til Pisa og Flórens auk þess sem mjög gaman er að skoða Cinque Terre, litlu þorpin fimm sem eru byggði við jafnmargar víkur.

8. maí – fimmtudagur – Róm (Civitavecchia)

Komum til hafnarborgar Rómar kl 06:00 að morgni og förum á ný kl 19:00. Um 90 mínútna akstur er inn til Rómar en þess virði því í Rómarborg er margt hægt að skoða.

9. maí – föstudagur – Napolí

Leggjum að bryggju í Napolí kl 06:00 og förum þaðan á nýjan leik kl 18:00. Pompeii er staður sem allir þurfa að skoða sem koma til Napolí og síðan er fínt að rölta um borgina sjálfa og sjá hvernig fólkið lifir í gamla bænum.

10. maí – laugardagur – Messina á Sikiley

Komum til Sikileyjar kl 07:00 og förum á ný kl 18:00 og siglum þá í gegnum Messinasundið, sem er gaman því þar er mjög mikill straumur og gaman að fylgjast með siglingunni.

11. maí – sunnudagur – Valletta á Möltu

Komum til Valletta kl 07:00 og förum á ný kl 15:00. Skemmtilegur og fallegur bær sem vert er að kíkja aðeins á en örstutt labb er í lyftu sem flytur okkur upp í hallargarðinn og þaðan er gengið inn í bæinn.

12. maí – mánudagur – Corfu í Grikklandi

Komið til grísku eyjarinnar Corfu kl 12:15 og farið þaðan kl 20:00. Virkilega skemmtilgur grískur bær og skoðunarferðirnar hér eru líka flottar. Gaman að rölta upp í kastalann og horfa yfir bæinn og höfnina.

13. maí – þríðjudagur – Dubrovnik í Króatíu

Komið þangað kl 08:00 og lagt af stað á ný kl 20:00. Venjulegast er farið hér í land með léttabátum. Hér er virkilega gaman að rölta um innan veggja gamla bæjarins og skoða hann, setjast á veitingahús við gömlu höfnina og njóta þess að vera til.

14. maí – miðvikudagur – Split í Króatíu

Komið þangað kl 06:00 og lagt af stað á ný kl 17:00 síðdegis. Hér er farið í land með léttabátum og það er gaman að kíkja í bæinn og skoða mannlífið þar.

15. maí – fimmtudagur – Siglingu lýkur

Leggjumst við bryggju í Triesta kl 07:00, förum frá borði um kl 09:00 og með rútu til Mestre þar sem við gistum í tvær nætur.

16. maí – föstudagur – Feneyjar

Þeir sem vilja geta farð með fararsjóranum með lestinni niður í Feneyja, en það tekur ekki langan tíma. Síðan er göngutúr í gegnum Feneyjar og endað á Markúsartorginu. Þar er gaman að taka vatnataxa til baka að lestarstöðinni og síðan heim á hótel.

17. maí. Heimferð

Fljúgum frá Feneyjum til Amsterdam með KLM um hádegi og þaðan til Kefavlíkur með Icelandair og lendum í Keflavík um kl sex í eftirmiðdaginn.

Fararstjóri:

Skúli Unnar Sveinsson - Fararstjóri

Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.