Brottför 20. febrúar, heimkoma 13. mars.

Panamaskurðurinn frá Miami með BLISS

Flogið með Icelandair til Orlando 20. febrúar og gist þar í tvær nætur. Siglt er frá Miami – 22. febrúar og komið við í Cartagena í Kólombíu, Colón, Panama, farið upp skipastigan og siglt um Gatun vatnið, siðan er Puntarenas, Costa Rica,  Puerto Quetzal í Gvatemala, Manzanillo, Puerto Vallarta og Cabo San Lucas í Mexíkó áður en lagst verður að bryggju í Los Angeles. Þar gistum við í þrjár nætur áður en flogið verður heim í gegnum Seattle og lent í Keflavík snemma morguns þann 13. mars.

Glæsiskipið Norwegian Bliss

Norwegian Bliss var smíðað 2018. Það er rúmlega 168.000 brúttótonn, 333 m á lengd og 41 metri á breidd. Það rúmar 4.000 farþega og í áhöfn eru 1.7216 manns. Um borð er fjöldi veitingastaða, barir, diskótek, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa, leikhús sem tekur yfir 1000 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann í svalaklefa – 980.000 kr.

Verð á mann í innklefa – 820.000 kr.

Verð í svalaklefí – einbýli – 1 400.000 kr.

Verð í innklefi – einbýli – 1 020.000 kr.

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, fimmtán nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”:Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. Ath. Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.Matarpakkinn:  Út að borða á sérstöku veitingastöðunum: tvisvar sinnum fyrir gestir í svalaklefi og einu sinni fyrir gestir í innklefar og stúdíóklefar.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir.Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.
EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

20. febrúar – fimmtudagur – Keflavík – Orlando

Flogið til Orlando með Icelandair  þar sem gist verður í tvær nætur á Avanti Palms The Point Hotel.

21. febrúar – föstudagur – Orlando

Frjáls dagur í Orlando, golf, sólbað, skemmtigarðar eða verslanir, bara það sem fólk vill.

22. febrúar – laugardagur – Sigling hefst

Farið frá hótelinu eftir morgunverð og til Miami þar sem Bliss bíður okkar. Lagt úr höfn kl 17:30.

23. – 24. febrúar – sunnudagur og mánudagur – á siglingu

Verðum á siglingu báða dagana og um að gera að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða

25. febrúar – þriðjudagur – Kólombía, Cartagena 

Komið til Cartagena í Kólombíu kl 07:00 og farið kl 17:00.

26. febrúar – miðvikudagur – Colón, Panama 

Colón er borg og höfn í Panama, við Karíbahaf, nálægt inngangi Atlantshafsins í Panama-kanalinn. Hún er höfuðborg Colón-héraðs í Panama og hefur heitið Panama-borgarinnar. Borgin hefur upplifið eldgos og eldbruna, en hefur samt endurvakið sig og er nú spennandi áfangastaður. Komið til Cólon kl. 9:00 og farið kl. 20:00.

27. febrúar – fimmtudagur – Panamaskurð

Förum upp skipastigann snemma morguns, siglum á Gatun vatninu í björtu og förum síðan niður á ný, en nú Kyrrahafsmegin.

 

28. febrúar – Föstudagur – á siglingu

Verðum á siglingu allan dag. Kíkja í laugina, fara á bókasafnið eða bara gera ekki neitt.

01. mars – Laugardagur – Puntarenas, Kosta Ríka 

Komum til Puntarenas kl. 7:00 og förum kl. 20:00.

02. mars – Sunnudagur – á siglingu

Alltaf nóg um að vera um borð, sólbað, heilsulyndin, alls konar námskeið og margt fleira.

03. mars – mánudagur – Puerto Quetzal

Komum til Puerto Quetzal í Gvatimala kl 12 á hádegi og förum á ný kl 22:00

04. mars – þríðjudagur – á siglingu

Á siglingu í allan dag. Kíkja í laugina, fara á bókasafnið eða bara gera ekki neitt.

05. mars – Miðvikudagur – Manzanillo, Mexico

Enn erum við á Mexíkönsku Riverunni. Komið hingað kl 12:45 og farið á ný kl 20:00.

06. mars – Fimmtudagur – Puerto Vallarta, Mexico

Komið hingað kl 07:00 og farið á ný kl 15:00. Fallegur bær og stutt er á fallegar strendur þar sem gaman er að snorkla og kafa.

07. mars – Föstudagur – Cabo San Lucas, Mexico

Komið hingað kl 07:00 og farið á ný kl 15:00. Farið í land með léttabátum. Skemmtilegur 200.000 manna bær sem er þekktastur fyrir strendur í nágrenninu, ýmiskonar vatna leiki og næturlífið.

08. mars – Laugardagur –  Á siglingu

Síðasta tækfifærðið til að gera eitthvað skemmtilegt um borð á meðan við tökum stefnuna á Los Angeles. Hvers vegna ekki að prófa kappaksturbrautina?

09. mars – Sunnudagur – Los Angeles, California – Siglingu lýkur

Komum til Los Angeles kl 07:00 og förum frá borði um kl 11:00, förum upp á hótel og gistum þar í þrjár nætur.

10. mars – 11. mars – Mánudagur og Þríðjudagur – Los Angeles

Nóg um að vera í Englaborginni og mikið að skoða.

12. mars – Miðvikudagur –  Heimferð

Farið út á flugvöll snemma morguns og fljúgum til Seattle og síðan heim með Icelandair og lent snemma að morgni 13. mars í Keflavík.

Fararstjóri:

Bliss Aerial
Bliss Haven Observation Lounge
Bliss Haven Observation Lounge
Bliss Mini Suite
Bliss Aerial
Bliss Escape Tortola
Bliss Alaskan Landscape
Bliss Atrium Bar
Bliss Casino Skyline Bar
Bliss District Brew House Bar
Bliss District Brew House Lounge
Bliss Humidor Cigar Lounge
Bliss Race Track
Bliss Race Track
Bliss Sugarcane Mojito Bar
Bliss Observation Lounge
Bliss Oceanview