Brottför 7. apríl – Heimkoma 21. apríl.

Flogið til Lissabon með Play, 7. apríl og gist þar í fjórar nætur áður en 10 nátta siglingin hefst með viðkomu á Madeira, Grand Kanarí, Santa Cruz de la Palma, Lanzarote, Gibraltar, Malaga, Cadiz og til Lissabon á ný. Þar er farið beint út á flugvöll og flogið heim samdægurs.

Glæsiskipið Norwegian STAR

Norwegian Star var tekið í gegn í 2021, en það var smíðað árið 2001. Það er tæplega 92.000 brúttótonn, 294 m á lengd og 38 metra breitt. Farþegar geta verið 2.300 og áhöfnin telur 1.031 og siglingarhraði er 23 hnútar. Um borð eru allskonar veitingastaðir, mörg kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur um 600 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa 695.000 og í innklefa 565.000 kr.

Fyrir einn í svalaklefa 938.000 kr og í innklefa 705.000 kr

INNIFALIÐ:

Flug til og frá Lissabon með PLAY, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.

Gisting með morgunverði í fjórar nætur í Lisabon fyrir siglinguna.

Tíu nátta sigling, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. Íslensk fararstjórn.

Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”:

Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.

Matarpakkinn: tvisvar sinnum (innklefar og stúdíóklefar einu sinni) út að borða á sérstöku veitingastöðunum.

WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.

Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir.

Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.

EKKI INNIFALIÐ:

Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

7. apríl – mánudagur – Keflavík – Lissabon

Flogið til Lissabon með Play og lent þar kl. 20:40. Frá flugvöllinu er ekið beint á hótel og gist þar í fjórar nætur.

8.-10. apríl – Lissabon

Frjálsir dagar í Lissabon sem er mjög falleg borg og margt að sjá

11. apríl – föstudagur – Sigling hefst 

Leggjum af stað frá hótelinu kl. 12:00 og ökum niður á bryggju þar sem við förum um borð í Star. Brottför er kl. 21:00.

12. apríl – laugardagur – á siglingu

Á siglingu allan daginn og um að gera að skoða skipið og læra aðeins á það og auðvitað njóta þess sem boðið er uppá um borð, bæði í mat, drykk og ekki síður skemmtilegri dagskrá.

13. apríl – sunnudagur – Funchal á Madeira

Komið til Funchal kl. 07:00 og lagt úr höfn á ný kl. 16:00. Fallegur bær á blómaeyjunni, gaman að fara í kláf yfir bæinn og renna sér á gömlum stleðum niður brattar malbikaðar götur. Setjast á kaffihús og skoða mannlífið.

14. apríl – mánudagur – Las Palmas Grand Kanaria

Leggjum að bryggju í höfuðstað Grand Kanaría kl 09:00 og farið kl 19:00. Skoðunarferðir, eða skjótast niður á ensku stöndina og hitta alla Íslendingana sem þar eru.

15. apríl – þriðjudagur – Santa Cruz de la Palma

Komum til eyjarinnar kl. 07:00 og lagt úr höfn á ný kl. 17:00. Hér búa aðeins um 10.000 manns og loftið þykir einstaklega tært og segir sagan að á kvöldin megi sjá gíga tunglsins berum augum.

16. apríl – miðvikudagur – Arrecife, Lanzarote

Komið til Lanzarote kl 07:00 og farið á ný kl 20:00. Eyjan hefur staðið dálítið í skugga Kanarí og Tenerife hvað varðar ferðamennsku en sífellt að verða vinsælli enda ekki sami fjöldi ferðamanna þar og því þykir mörgum ákjósanlegt að ferðast hingað og njóta náttúrunnar og friðsældarinnar.

17. apríl – fimmtudagur – á siglingu 

Á siglingu í allan daga áleiðis til meginlandsins og um að gera að njóta um borð því nóg er um að vera

18. apríl – föstudagur – Gíbraltar

Leggjum að bryggju kl 10:00 og leggjum í hann á ní kl 20:00. Fara upp á klettinn og kíkja kannski í leiðinni á apana sem leiðist ekkert að atast í ferðamönnum.


19. apríl – laugardagur – Malaga (Granada)

Komið er til Malaga kl. 07:00 og farið þaðan kl. 20:00. Borgin er í suðurhluta Spánar og þykir falleg og gaman að skoða gamla bæinn. Einnig er hægt að skjótast aðeins sunnar og kíkja á Costa del Sol þar sem fjölmargir Íslendingar hafa dvalið í gegnum tíðina.

20. apríl – sunnudagur – Cadiz

Nú erum við aftur komin út á Atlandshafið. Leggjum að bryggju kl 07:00 og leggjum í hann á nýjan leik kl 16:00. Bær sem er byggður út á tanga og hér er gaman að rölta um, skjótast á ströndina eða bara kíkja á kaffihús.

21. apríl – mánudagur – siglingu lýkur

Komið til Lissabon í Portúgal snemma morguns og farið frá borði um kl. 09:00. Dúllum okkur eitthvað í bænum áður en haldið er út á flugvöll og flogið heim með Play kl 21:40 og lent um kl 01:00 um nóttina í Keflavík.

Fararstjóri:

Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við Skúli Unnar Sveinsson - Fararstjóri

blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.

Kortið er ekki nákvæmlega rétt leið, vantar seinni hluta siglingarinnar um Gíbraltar.