Brottför 16. janúar og heimkoma 28. janúar.

Karíbahafið með Epic

Flogið með Icelandair til Orlando síðdegis 16. janúar og lent í Flórída klukkan 20:35 að staðartíma. Gist í tvær nætur á hótel Avanti Palms The Point Hotel, sem er gríðarlega vel staðsett. Ekið er frá hótelinu til Port Canaveral þar sem farið er um borð í Epic. Siglingin sjálf er sjö nátta og er komið við í Cozumel í Mexíkó, George Town á Cayman eyju, Ocho Rios á Jamaika og Great Stirrup Cay, lítilli eyju sem skipafélagið á.

Tveir dagar eru á siglingu, annar á leiðinni til Cozumel og hinn á leiðinni frá Jamaika til Great Stirrup Cay.  Komið er til Port Canaveral að morgni 25. janúar og farið á hótelið. Síðan er farið frá hótelinu upp úr hádegi 28. janúar, upp á flugvöll og farið í loftið klukkan 18:00. Lent er í Keflavík snemma morguns 29. janúar.

Glæsiskipið Norwegian Epic

Norwegian Epic er 155,873 brúttótonn, 329 metrar á lengd og tekur 4.100 farþega. Áhöfnin er 1.753 og ganghraði er 20 hnútar. Epic er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.

Verð á mann þegar tveir ferðast saman í svalaklefa 550.000 kr.

Verð á mann þegar tveir ferðast saman í innklefa 495.000 kr. 

Verð í svalaklefí – einbýli – 680.000 kr.

Verð í innklefi – einbýli – 580.000 kr.

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”.Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.Matarpakkinn: tvisvar sinnum (innklefar og stúdíóklefar einu sinni) út að borða á sérstöku veitingastöðunum.

WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.

Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir.

Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.

EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

16. janúar – fimmtudagur – Keflavík – Orlandó

Flogið síðdegis með Icelandair til Orlando þar sem lent er klukkan 20:05 að staðartíma. Ekið sem leið liggur á Avanti Palms The Point Hotel.

17. janúar – föstudagur – Orlandó

Frjáls dagur í Orlando en þar er nóg hægt að gera, fara í golf, einhvern hinna fjölmörgu skemmtigarða eða kíkja í búðir.

18. janúar – laugardagur – Sigling hefst

Haldið frá hótelinu fyrir hádegi og ekið til Port Canaveral þar sem farið er um borð í EPIC og lagt úr höfn klukkan 17:30.

Norwegian - Epic

19. janúar – sunnudagur – Á siglingu

Við verðum á siglingu allan daginn og tilvalið að læra á skipið, skella sér í sund, í sólbað eða eitthvað annað sem fólki langar til.

20. janúar – mánudagur – Cozumel í Mexíkó

Cozumel eyjan er 10 kílómetra úti fyrir austurströnd Mexíkó. Hún er 48 kílómetra löng og 16 kílómetra breið þar sem hún er breiðust. Íbúar er rétt rúmlega 100.000 og þar af búa um 80.000 í San Miguel á vesturströnd eyjarinnar. Þetta er stærsta höfnin sem komið er til í þessari ferð og tilvalið að rölta í land og kíkja í miðbæinn. Gríðarlegur fjöldi verslana er á svæðinu þannig að allir ættu að geta fengið sér einhvern minjagrip frá Mexíkó. Komið þangað kl. 08:00 og farið kl. 16:00.

21. janúar – þríðjudagur – George Town, Grand Cayman

Komið til George Town á Cayman eyju og hér er farið í land með léttabátum. Komið er í höfn klukkan 10:00 árdegis og ankerum létt klukkan 18:00.

22. janúar – miðvikudagur – Ocho Rios á Jamaika

Komið til Jamaica kl 09:00 og farið á ný kl 17:00. Hér er margt hægt að gera, til dæmis að fara í skemmtilega skoðunarferð til Seven Miles þar sem Bob Marley fæddist og bjó, snorkla eða kafa og svo mætti lengi telja.

Epic Aqua Park Family Splash

23. janúar – fimmtudagur – Á siglingu

Sólbað og þægilegheit um borð. Kannski skotist í gufu, heitan pott, farið í vínsmökkun eða að læra línudans. Alltaf nóg um að vera um borð.

24. janúar – föstudagur – Great Stirrup Cay

Vörpum ankerum úti fyrir eynkaeyju skipafélagsins kl 08:00 og förum í land með léttabátum. Kokkar og þjónar fara líka í land með allt sitt hafurtask og skipskortið dugar hér fyrir mat og drykk, en einnig eru hér litlar verslanir með vörur fyrir ferðamenn og fyrir þær þarf að greiða sérstaklega.

25. janúar – laugardagur – Siglingu lýkur

Lagst að bryggju í Port Canaveral kl 07:00. Förum frá borði upp úr kl 09:00 og ökum til Avanti Palms The Point Hotel þar sem við gistum í þrjár nætur. Búðarráp, golf, skemmtigarðar eða hvað eina sem fólki dettur í hug.

25. – 27. janúar – Orlandó

Frjálsir dagar í Orlandó og nú er tilvalið að kíkja í verslunarmiðstöðina eða búðirnar í kring og gera góð kaup því það er svo sannarlega hægt að gera þarna.

28. janúar – Heimferð

Farið frá hótelinu um klukkan 13:00 og ekið upp á flugvöll. Farið í loftið klukkan 17:45 og lent í Keflavík kl. 06:10 að morgni 29.janúar.

Fararstjóri: Skúli Unnar Sveinsson - Fararstjóri

Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.

Epic Moderno
Epic Courtyard
Epic Fitness
Epic Atrium Café
Epic Inside State room
Epic Aqua Park Family Splash
Epic Aqua
0Epic The Manhattan Room
Epic Ice Bar
Epic Deluxe Owners Suite Living Room
Epic Ultra Lounge
Norwegian - Epic
Epic spice