Siglt frá Barcelona til Miami í Flórída

Flogið til Barcelona með Icelandair, gist þar í þrjá nætur. Siglingin til Flórída er 14 nætur og á leiðinni er komið við í Cartagena, Granada, Madera, Antigua, Puerto Rico, Bahamas áður en komið er til Miami. Gist er í þrjár nætur á The Point Hotel & Suites í Orlando.

Glæsiskipið Norwegian Escape

Norwegian Escape var tekið í gegn í fyrra, en það var smíðað árið 2015. Það er tæplega 165.000 brúttótonn, 326 m á lengd og 55 metra breitt. Farþegar geta verið 4.266 og er Escape því það skip NCL sem tekur flesta farþega.  farþega. Áhöfnin telur 1.733 og siglingarhraði er 23 hnútar. Um borð eru um 10 veitingastaðir, mörg kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur um 800 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann í svalaklefa 650.000 kr. og verð á mann í innklefa 560.000 kr.

INNIFALIÐ: Flug til Barcelona og frá Orlando með Icelandair. Allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.

Gisting í Barcelona með morgunverði á hótel Catalonia Plaza Catalunya í þrjá nætur fyrir siglingu og þrjá nætur í Orlando á hótelinu The Point Hotel & Suites.

14-nátta sigling með Escape, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. Íslensk fararstjórn.

Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”:

Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.

Matarpakkinn: Út að borða á sérstöku veitingastöðunum: Þrisvar sinnum fyrir gestir í svalaklefi og tvisvar sinnum fyrir gestir í innklefar og stúdíóklefar.

WiFi: 300 mínútur á þráðlausa netinu um borð.

Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir.

Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir.

Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.

EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

23. nóvember – laugardagur – Keflavík – Barcelona

Flogið til Barcelona með Icelandair og farið beint á hótel Catalonia Plaza Catalunya þar sem við gistum í þrjá nætur.

24. – 26. nóvember – sunnudagur og mánudagur – Barcelona

Frjáls dagar í Barcelona, en þar er margt að sjá enda borgin einstaklega falleg og skemmtileg.

Hvort sem fólk vill hafa það menningarlegt og skoða eitthvað af fjölmörgum listasöfnum borgarinnar, eða bara rölta Römbluna og skoða mannlífið, nú eða þá skella sér á ströndina, þá er af nógu að taka.

26. nóvember – þríðjudagur – Sigling hefst – Barcelona 

Förum frá hótelinu fyrir hádegi og um borð í ESCAPE sem leysir landfestar kl. 18:00

27. nóvember – miðvikudagur – Cartagena, Spánn

Komum til Cartagenu, suðaustur-Spáni, kl 11:00 og lagt úr höfn á ný kl. 16:30. Cartagena önnur stærsta borg í Múrsía með þúsund ára sögu. Skemmtilegur staður með flottum götum, falleg borg og virkilega gaman að skoða miðbæinn.

28. nóvember – fimmtudagur – Granada (Malaga), Spánn

Komið klukkan 07:00 og farið á ný klukkan 18:00. Alltaf gaman að koma til Granada og skoða eitthvað af því fjölmarga sem þar er að sjá. Borgin er full af sögulegum staðum. Mest þekkið staður er Alhambra fegursta og merkasta mannvirki Spánar sem stendur á hæð ofan við borgarmiðju.

29. nóvember – föstudagur – á siglingu

Nú er kúrsinn settur vestur um haf og um að gera að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða, en nóg er alltaf um að vera um borð.

30. nóvember – laugardagur – Funchal, Madeira

Komð þangað kl 07:00 og farið aftur kl 14:00. Portúgölsk eyja í miðju Atlantshafinu sem skratar fallegum gróðri, hverasvæði og fallegri náttúru.

01. – 05. desember – frá sunnudag til fimmtudag – á siglingu

Nú er það bara fimm daga afslöppun, heitir pottar, spaið, sólbað eða hvað eina sem fólki dettur í hug til að hvílast og hafa það huggulegt.

06. desember – föstudagur – Saint John´s, Antígva

Komð þangað kl 10:00 og farið aftur kl 18:00. Eyja Antígva er á mörkum Karíbahafs og Atlantshafsins. Antígva eru hluti af Litlu-Antillaeyjum.

07. desember – laugardagur – San Juan, Puerto Rico

Komð þangað kl 10:00 og farið aftur kl 18:00. San Juan er höfuðborg og stærsta sveitarfélag Púertó Ríkó.
Borgin var stofnuð af spænskum landvinningamönnum árið 1521 sem kölluðu hana Ciudad de Puerto Rico. Eyjan var þá kölluð San Juan Bautista. Með tímanum fékk eyjan nafn borgarinnar en borgin nafn eyjunnar.
San Juan er einnig þekkt fyrir sína skemmtilegu strönd.

08. desember – sunnudagur – á siglingu

Sólbað og þægilegheit um borð. Kannski skotist í gufu, heitan pott, farið í vínsmökkun eða að læra línudans. Ísbúðin er líka alltaf freistandi.

09. desember – mánudagur – Great Stirrup Cay

Vörpum ankerum úti fyrir eynkaeyju skipafélagsins kl 10:00 og förum í land með léttabátum. Kokkar og þjónar fara líka í land með allt sitt hafurtask og skipskortið dugar hér fyrir mat og drykk, en einnig eru hér litlar verslanir með vörur fyrir ferðamenn.

10. desember – þríðjudagur – sigling lýkur

Lagst að bryggju í Miami kl 05:00. Förum frá borði upp úr kl 09:00 og ökum til hótel The Point Hotel & Suites í Orlando, þar sem við gistum í þrjár nætur. Búðarráp, golf, skemmtigarðar eða hvað eina sem fólki dettur í hug.

11. – 12. desember – miðvikudagur og fimmtudagur – Orlando

Njótum lífsins í Orlando í tvo daga, golf, skemmtigarðar, verslanir og allt sem manni dettur í hug að gera.

13. desember – föstudagur – Heimferð 

Förum frá hótelinu um klukkan 13:00 og út á flugvöll. Fljúgum heim með Icelandair og lendum í Keflavík kl. 06:05 að morgni 14. desember.

Fararstjóri:

Skúli Unnar Sveinsson - FararstjóriFararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.

Epic Burn the Floor