Brottför 23. maí – Heimkoma 06. júní 2025.

Flogið til Barcelona með Icelandair 23. maí og gist þar í tvær nætur áður en 9 nátta siglingin hefst. Komið er við í Cannes í Frakklandi, Livorno, Róm og Napolí á Ítalíu, Cagliari á Sardiníu, Mallorka og Ibiza áður en siglingunni lýkur í Barcelona. Gist þar í þrjár nætur áður en haldið er heim.

Glæsiskipið Norwegian Breakaway

Norwegian Breakaway var tekið í gegn 2020, en það var smíðað árið 2013. Það er tæplega 146.000 brúttótonn, 326 m á lengd og 52 metra breitt. Farþegar geta verið 3.903 og áhöfnin telur 1.657 og siglingarhraði er 23 hnútar. Um borð eru um 10 veitingastaðir, mörg kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur um 800 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa 595.000 og í innklefa 520.000 kr.

Verð í svalaklefí – einbýli – 790 000 kr.

Verð í innklefi – einbýli – 660 000  kr.

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.

Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”.

Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.

Matarpakkinn: Út að borða á sérstöku veitingastöðunum: tvisvar sinnum fyrir gestir í svalaklefi og einu sinni fyrir gestir í innklefar og stúdíóklefar.

WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.

Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir. Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.

EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

23. maí – föstudagur – Keflavík – Barcelona

Flogið með Icelandair til Barcelona og lent þar um kl 15:00. Ekið upp á hótel þar sem gist verður í tvær nætur.

24. maí – laugardagur – Barcelona

Frjáls dagur í Barcelona, en þar er margt að sjá enda borgin einstaklega falleg og skemmtileg. Hvort sem fólk vill hafa það menningarlegt og skoða eitthvað af fjölmörgum listasöfnum borgarinnar, eða bara rölta Römbluna og skoða mannlífið, nú eða þá skella sér á ströndina, þá er af nógu að taka.

25. maí – sunnudagur – Sigling hefst

Leggjum af stað frá hótelinu kl. 12:00 og ökum niður á bryggju þar sem við förum um borð í Breakaway, sem er með stærstu skemmtiferðaskipum í heimi, 165.000 tonn. Brottför er kl. 17:00.

26. maí – mánudagur –  Cannes

Komum til Cannes í Frakklandi kl 08:30, förum í land með léttabátum og léttum síðan ankerum kl 18:00

27. og 28. maí – þríðjudagur, miðvikudagur – Livorno

Komið til Livorna kl. 06:30 og lagt úr höfn á ný kl. 19:00 daginn eftir. Hér er tilvalið að skjótast til borgarinnar Flórens, sem er gríðarlega falleg borg og virkilega gaman að skoða miðbæinn þar. Ekki er heldur óvitlaust í leiðinni að renna við í Pisa og kíkja á skakka turninn. Cinque Terre er einnig einstaklega skemmtilegur staður. og svo er líka gaman að rölta um Livornobæinn.

29. maí – fimmtudagur – Civitavecchia / Róm

Lagt við bryggju í Civitavecchia kl. 06:30 og farið af stað á ný kl. 19:00. Allar leiðir liggja til Rómar og þar er mikið og margt að skoða. Athugið þó að Róm var ekki byggð á einum degi og ekki er hægt að skoða hana alla á einum degi. Páfagarður, Colloseum, Roman Forum, Vatikanið og mörg falleg torg víða um borgina er meðal þess sem hægt er að kíkja á ef fólk vill fara inn til Rómar.

30. maí – föstudagur – Napolí

Komið til Napolí kl. 06:30 og lagt úr höfn kl. 17:00. Hér er margt hægt að gera og ef fólk hefur ekki komið til Pompei og skoðað rústirnar þar þá er það mjög áhugavert. Hægt er að skjótast með báti yfir til Kaprí, sem er lítil og falleg eyja. Einnig er mjög gaman að fara til Sorrento, en leiðin þangað er mjög brött og falleg.

31. maí – laugardagur – Cagliari á Sardiníu

Lagt við bryggju á Sardiníu kl 09:00 og farið á ný kl 16:00. Cagliari er höfuðborg eyjarinnar og stendur á suðurodda hennar. Á eynni búa um 160.000 manns og borgin sjálf er þekkt fyrir skemmtilegan gamlan miðbæ og mikð af fallegum byggingum.

1. júní – sunnudagur – Ibiza

Komið til Ibiza kl 13:30 og farið á ný kl 22:00. Skemmtilegur bær, stutt á Bossa ströndina ef fólk vill í sólbað eða fara í skoðunarferðir upp í sveit á þessari fögru eyju, sem er þó einna þekktust fyrir fjörugt næturlíf. Skemmtilegur miðbær.

2. júní – mánudagur – Palma á Mallorka

Komið er til Palma á Mallorka kl. 08:00 og farið þaðan kl. 17:00. Margt skemmtilegt að gera hér, fara á stönd, í flottar skoðunarferðir eða bara rölta upp í bæ og kíkja aðeins í búðir.

3. júní – þriðjudagur – Siglingu lýkur

Komið til Barcelona snemma morguns. Farið frá borði um kl 08:00 og haldið upp á hótelið þar sem við gistum í þrjár nætur. Tilvalið að nota dagana til að skoða það sem menn komust ekki yfir fyrir siglinguna.

4. – 6. júní. Barcelona.

Notum dagana til að skoða þessa skemmtilegu borg. Föstudaginn 6. júní förum við út á flugvöll upp úr hádegi og fljúgum heim með Icelandair, lendum í Keflavík um klukkan 18:20.

Fararstjóri:

Skúli Unnar Sveinsson - Fararstjóri

Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson.

Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.