Fórum í gríska eyjahafið í október með Skúla á Spirit, ógleymanleg ferð.
Gistum þrjár nætur í Feneyjum og kynntumst þar ferðafélögum okkar sem
var einstaklega góður hópur.
Síðan var siglt af stað með viðkomu á frábærum stöðum með frábærum
fararstjóra, honum Skúla sem alltaf er til staðar.
Áttum að lokum 3 nætur í hinni töfrandi Rómarborg.
Þetta er fimmta siglingin okkar með Skúla og það hlýtur að segja sitt.
Takk kærlega fyrir okkur, við eigum eftir að fara aftur.
Maggi og Gyða.