
7. mars Keflavík Singapore
Flogið til London með Icelandair. Brottför frá Keflavík kl. 16:20. Flogið frá London með Singapore Air kl. 16:20 og lent í Singapore kl.19:00 8 mars og gist þar í tvær nætur. Gist á Parkroyal on Beach sem er glæsilegt 5 stjörnu hótel miðsvæðis í Singapore.
Singapore eða The Republic of Singapore er eyja í suð austur Asíu. Íbúafjöldi er tæpar sex miljónir. Opinbert tungumál er Malay og Enska. Einu sinni bresk verslunarmiðstöð með gömlum kínahverfum og litríkum hindúa musterum. Borgin státar af mörgum skýjakljúfum. Hægt er að fara í stutta siglingu á Singapore ánni eða fara með hjólataxa um borgina.

8. og 9. mars Singapore Gist á Parkroyal on Beach
Frjálsir dagar sem fólk getur nýtt til að skoða sig um, versla eða hvað eina sem fólki dettur í hug.



10. mars Siglingin hefst
Farið frá hótelinu fyrir hádegi og ekið niður á höfn þar sem Norwegian Sun bíður okkar. Lagt úr höfn kl 19:00.

11. mars Á siglingu
Á siglingu allan daginn og um að gera að skoða skipið og læra aðeins á það og auðvitað njóta þess sem boðið er uppá um borð, bæði í mat, drykk og ekki síður skemmtilegri dagskrá.

12. mars Phuket Thailand
Komum kl 07:00 til Phuket í Thaqilandi og leggjum í hann á ný kl 19:00. Skemmtileg borg með glæsiströndum og með 19.aldar kínverskri og vestrænni byggingarlist. Gaman að skoða töfrandi Búddamusterið Wat Chalong með risastórri gylltri búddastyttu. Phang Nga þjóðgarðurinn er stórkostlegur og varð frægur vegna James Bond myndarinnar “The Man with the Golden Gun”.

13. mars Langkawi Malysia
Komið kl 07:00 og farið á ný kl 19:00. Langkawi er áhugverður staður með hæðóttu landslagi, Hilim Karst skógurinn þar sem hægt er að fara í bátsferðir um undurfagurt landslang, borða á fjótandi veitingastöðum og síðan er hægt að fara á Cenang Beach í afslöppun. Kuah Town er áhugaverður staður með Duty Free búðum ef menn vilja versla.

14. mars Penang Malysia
Komið kl 07:00 og farið á ný kl 19:00. Pengang er þekkt sem Perla Austurlanda, regnskógarnir á eyjunni er afar fallegir, fjöll með mörgum fossum og svo fallegar sandstrendur. Í Georg Town er sögufræg hverfi, blanda af nýlendu byggingum og kínverskri arfleið. Þar eru musteri á heimsminjaskrá UNESCO. Hið risastóra Kek Lok Si hof er áhugavert að skoða og þaðan er stórfenglegt útsýni yfir Georg Town. Í Penang er ríkulegt úrval af Street Food stöðum sem ætti að freista matgæðinga.

15. mars Port Klang Kuala Lumpur Malysia
Komið kl 08:00 og farið á ný kl 22:00. Kuala Lumpur, sem er höfuðborg Malasíu, er blanda af nýlendutímanum, íslömskum og nútímalegum arkitektúr. Petronas turnarnir og hiða fallega Masjik Jamek sem eitt sinn var aðalmoskva Kuala Lumpur. Frá Kuala Lumpur turninum er stórbrotið útsýni en hann stendur á hæsta punkti borgarinnar. Á markaðinum í borginn er fjöldi sölubása og verslanna þar sem hægt er að kaupa minjagripi án þess að prútta.

16. og 17. mars Sigling
Nú er um að gera að slaka á og njóta lífsins um borð.

18. mars Phy My – Ho Chi Minh Vietnam
Komum til Phy My kl 07:00 og förum á ný kl 19:00. Flestir fara til borgarinnar Ho Chi Minh enda margt að skoða þar. Upplfiðu hina mögnuðu arfleið Saigon og Mekong Delta. Hægt að fara í ógleymanlega reiðhjólaferð með „Sick Low“ eins og það er kallað. Saigon státar af nýlenduarkítektúr og líflegum mörkuðum. Borgin er skemmtileg andstaða við gróskumiklar sveitir með hrísgrjónaökrum og litlum þorpum umhverfis borgina. Matargerð Saigon samanstendur af blöndu af matreiðslu heimamanna, einstakri blöndu af asískum kryddum og frönskum matreiðslustíl.
Phu My er hafnarhverfi í Ho Chi Minh-borg í Víetnam, staðsett suðaustan við miðborgina og mikilvægt sem iðnaðar- og flutningamiðstöð. Svæðið tengist skipasiglingum og verslun og býður einnig upp á ferska sjávarrétti, götumat og hefðbundna víetnamska rétti eins og pho, bun cha og ferska spring rolls í nærliggjandi veitingastöðum
Til gömlu Saigon (District 1 í Ho Chi Minh-borg), þá er hún um 25–30 kílómetrar eftir vegi, fer eftir hvaða leið er valin.
Með bíl eða skutlu tekur ferðin venjulega 30–50 mínútur án mikils umferðar.
Í háum umferðar tíma getur ferðin tekið allt að 1–1,5 klukkustund.
Ferðin frá Phu My til Gömlu Saigon (District 1, Ho Chi Minh-borg) er þægileg og býður líka smá innsýn í hversdagslíf í Víetnam.
Með bíl eða taxi
Þetta er um 25–30 kílómetrar, fer eftir leið.
Venjulegur akstur tekur 30–50 mínútur, en í háum umferðar tíma getur það tekið allt að 1–1,5 klukkustund.
Á leiðinni sérðu iðnaðarhverfi, hafnarsvæði og úthverfi borgarinnar áður en þú kemur inn í miðbæinn með gömlu byggingunum, verslunum og kaffihúsum.
Með almenningssamgöngum
Strætó og rútuþjónusta eru tiltölulega ódýr en töluvert hægari, allt að 1,5–2 klukkustundir.
Þetta er góður kostur ef þú vilt kynnast daglegu lífi heimamanna og sjá götulíf og markaði á leiðinni.
Áhugaverðir staðir á leiðinni
Phu My port, fyrir áhugafólk um skip og iðnað
Litlir staðbundnir markaðir með ferskum ávöxtum og götumat
Fyrir framan borgarmörk, svæði með kaffihúsum og sölustöðum fyrir götumat þar sem hægt er að smakka pho, banh mi og ferska spring rolls.
Fyrir þá sem ekki kaupa skoðunarferð á vegum NCL eru á eigin ábyrgð ef þeir tefjast, skipið bíður ekki eftir þeim sem eru á eigin vegum í landi og mæta ekki á réttum tíma um borð.

19. mars Sigling

20. mars Ko Samui Thailand
Komið kl 07:00 og farið á nú kl 17:00. Hér er farið í land með léttabátum. Ko Samui er skógivaxin eyja með fögrum ströndum, stórkostlegri náttúru, kókoshnetu ræktun og fleiru. Hægt er að fara í ferð með fílum en einnig er frábært að versla krydd, silki og fleira.

21. mars Laem Chabang Thailand
Komum til Leam Chabang kl 06:00, en þetta er hafnarborg Bangkok. Gistum um borð í eina nótt og um að gera að nota tækifærið og skoða þennan 90.000 manna strandbæ, skjótast kannski út á Pattaya ströndina.

22. mars siglingu lýkur. Förum frá borði um kl 10:00 og keyrum til Bangkok þar sem við gistum á Anantara Siam Bangkok sem er glæsilegt 5 stjörnu hótel í miðbænum.




23. mars Bangkok
Bangkok með sín gylltu musteri og hallir. Musteri Emerald Buddha útskorið úr jade er skylduáhorf fyrir alla. Dögunarhofið við ánna er töfrandi og þess virði að skoða. Konungshöllin er gríðarstór og samanstendur af gylltum útskornum byggingum. Þar er sögusvið Önnu og konungsins af Síam. Höllin er enn notuð af konungsfjölskyldunni. Bankok er ógleymanleg borg sem er gaman að heimsækja.

24. mars Bankok

25. mars Bangkok – Keflavik
Brottför frá Bankok kl.00:05 aðfaranótt 25 mars með Thai Airways og lent í Oslo kl.07:35. Brottför til Keflavíkur með Icelandair kl.13:10 og lent í Keflavík kl.15:20 25 mars.
Fararstjórar: Í þessari ferð eru tveir fararstjórar
Fararstjórar í ferðinni er Gunnlaugur Hafsteinsson og Kjartan Már Hallkelsson.
Gunnlaugur er vélfræðingur og tæknifræðingur að mennt. Hann hefur mikla reynslu af ferðalögum og fararstjórn.
Kjartan er stúdent frá Versló, Íþróttafræðingur frá Laugarvatni hefur rekið eigin fyritæki lengi og hefur mikla reynslu af ferðlögum og mannlegum samskiptum.
Ánægðir viðskiptavinir okkar aðalmarkmið og við hjá Sula Travel leggjum metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.
Sjá ummæli farþega hér.