Feneyjar til Barcelona 12 – 26 júní 2026.

Flogið til Feneyja með Icelandair, brottför kl.08:20 og lent í Feneyjum kl.15:00. Gistum í Mestre (Feneyjum) í þrjár nætur og förum síðan í 9 nátta siglingu með NCL Viva frá Feneyjum  þar sem komið er við í Kotor í Svartfjallalandi, Dubrovnik í Króatíu, Salerno, Róm (Civitavecchia) og Livorno á Ítalíu, Nice ( í Frakklandi), Monaco, Palma á Mallorka á Spáin og endað í Barcelona. Þar gistum við í tvær nætur áður en við fljúgum heim með Icelandair.

Glæsiskipið Norwegian Viva

Norwegian Viva er 155,873 brúttótonn, 294 metrar á lengd og tekur 3.195 farþega. Áhöfnin er 1.506 og ganghraði er 20 hnútar. Viva er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu. Viva er næst nýjasta skip Norwegian Cruise Line, byggt 2023 og er afar smekklega innréttað.

 

Verð á mann miðað við tvo í svalaklefa kr. 795.000

Verð á mann miðað við tvo í innklefa kr.680.000

 

 

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, níu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
More At Sea. Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.
EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

12. Júní- Laugardagur- Keflavík – Feneyjar

Flogið með Icelandair og til Feneyja. Brottför kl.08:20 og lent í Feneyjum kl. 15:00 Ekið til hótels Ambasiciatore glæsilegs fjögurra stjörnu hótels  í Mestre (Feneyjar). Gistum þar í þrjár nætur.

13. og 14.  júní -Sunnudagur – Feneyjar

Notum dagana til að skoða Feneyjar enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Fararstjóri fer annan daginn með það sem vilja í göngutúr um Feneyjar.Feneyjar (Venezia) er borg á Norður-Ítalíu sem stendur á um 100 eyjum í Feneyjalóninu við Adríahaf. Í stað hefðbundinna gatna eru síki, og bátar og gondólur eru algeng samgöngutæki. Borgin er fræg fyrir Markúsartorg, Markúsarkirkju, Rialto-brúna og Brú andvaranna. Feneyjar voru á miðöldum öflugt verslunarveldi og eru í dag einn vinsælasti ferðamannastaður heims, þekktur fyrir list, arkitektúr og árlegt karnival.

15. Júní – Mánudagur- Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um kl.10:00. Um tvo tíma tekur að aka til Ravena. Viva leggur úr höfn klukkan 17:00.

16. Júní – Þriðjudagur – Kotor

Komið til Kotor 13:00 og farið kl. 23:59.

Kotor í Svartfjallalandi hét einu sinni “Cattaro” og tilheyrði Ítalíu. hér búa um 13.000 manns, bærinn er afar fallegur og hefur mikla sögu. Bærinn stendur við Kotor flóa og umhverfið er afar mikilfenglegt.

Kotor er afar vinsæll komustaður skemmtiferðaskipa í Króatíu er oft kölluð “Perla Eyjaálfunnar” og er einhver skemmtilegasta borg sem skemmtiferðaskip koma til. Borgin er girt 13. aldar virkisveggjum, fræg fyrir gamlar sögufrægar bygginar, götur iðandi af mannlífi, veitingastöðum  og fallegri strandlegngju.

 17. Júní – Miðvikudagur – Dubrovnik

Komið til Dubrobnik 07:00 og farið kl. 16:39. Tökum rútu upp að gamla bænum og röltum þar um.Dubrovnik er sögufræg strandborg í suðurhluta Króatíu við Adríahaf. Hún er þekkt fyrir vel varðveitta miðaldaborgarmúra sem umlykja gamla bæinn, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.Borgin var áður sjálfstætt verslunarveldi, Lýðveldið Ragúsa, og naut mikillar velgengni á miðöldum. Í dag er Dubrovnik vinsæll ferðamannastaður, þekktur fyrir fallegar strendur, kristaltært haf og tökustaði úr sjónvarpsþáttunum Game of Thrones.

18. Júní – Fimmtudagur – Á siglingu

Nú er bara að njóta alls þess sem í boði er um borð.

 19. Júní  – Föstudagur- Salerno 

Komið kl.07:00 og farið kl.18:00

Salerno er forn borg við Salerno flóa. Landslagið umhverfis borgina er afar fallegt og stutt frá er hin fræga Amalfi strönd. Í Salerno var fyrsti læknaskóli Evrópu og borgin býr yfir mikilli sögu. Borgin státar af fjölda veitingahúsa, mannlífi og mörgu fleiru. Hún er þekkt fyrir fallega strandlengju, sögulegan miðbæ og nálægð við hina frægu Amalfíströnd. Borgin á sér langa sögu og var á miðöldum þekkt fyrir læknaskóla sinn, Schola Medica Salernitana, sem var einn sá elsti í Evrópu. Í Salerno má finna dómkirkjuna frá 11. öld, þröngar götur og líflegt mannlíf. Salerno er vinsæll viðkomustaður ferðamanna sem vilja sameina sögu, menningu og strandlíf.

 

houses on mountain near body of water

 20. Júní  – Laugardagur – Róm (Civitavecchia)

Komum til Civitavecchia  kl 06:45 og farið aftur kl 18:00.

Hin sögufræga Róm er ein frægasta borg í heimi. Hægt er að bóka skemmtilegar skoðunarferðir til borgarinnar á vegum skipsins. Öryggið við að bóka í skipsferð er að ef seinkun verður þá bíður skipið en ekki eftir þeim sem eru á eigin vegum. Róm (Roma) er höfuðborg Ítalíu og ein sögufrægasta borg heims. Hún var miðstöð hins mikla Rómaveldis og er oft kölluð „Hin eilífa borgin“. Í Róm má finna fjölmargar fornminjar, eins og Colosseum, Forum Romanum og Pantheon. Þar er einnig Vatíkanið, aðsetur páfa og miðstöð kaþólsku kirkjunnar, með Péturskirkjunni og Sixtínsku kapellunni. Róm sameinar forna sögu, list og arkitektúr við líflegt nútímalegt borgarlíf.

21. Júní – Sunnudagur – Livorno

Komið til Livorno  kl.07:00 og farið kl.22:00.

Nú erum við komin í Toskana héraðið norðarlega á Ítalíu. Héðan er stutt til Pisa og Flórens auk þess sem mjög gaman er að skoða Cinque Terre, litlu þorpin fimm sem eru byggði við jafnmargar víkur.

Livorno er hafnarborg á vesturströnd Ítalíu í Toskana-héraði. Hún er þekkt fyrir síki sín, sjávarrétti og mikilvæga höfn. Borgin hefur sterka sjóhefð og er oft viðkomustaður skemmtiferðaskipa.

Flórens (Firenze) er höfuðborg Toskana og ein mikilvægasta listaborg heims. Hún var miðstöð endurreisnarinnar og þar má finna fræg kennileiti eins og Dómkirkjuna (Duomo), Uffizi-safnið og styttuna af Davíð eftir Michelangelo.

Písa (Pisa) er sögufræg borg nálægt Livorno, þekktust fyrir Skakka turninn í Písa sem stendur við Dómkirkjutorgið (Piazza dei Miracoli). Borgin hefur einnig gamlan háskóla og fallegan miðbæ.

Aerial view of medieval stone bridge Ponte Vecchio over Arno river in Florence, Tuscany, Italy. Florence cityscape. Florence architecture and landmark.

22. Júní  – Mánudagur – Nice (Monaco) 

Komið til Nice  kl.07:00 og farið kl. 18:00

Nice hefur viðurnefnið “Nice la Bella” sem þýðir Nice fallega. Ein af fegurstu borgum Frakklands og þaðan er stutt að fara til Monaco eða um háftíma akstur.

Hægt að bóka sig í margar skoðunarferðir frá skipinu til Monaco og víðar.

Free A stunning aerial view of Monte Carlo's marina with yachts and city buildings. Stock Photo

23. Júní – Miðvikudagur – Provence (Marseille)

Komið t kl. 07:00 og farið kl. 17:00

Provence er sögulegt og fallegt landsvæði í suðurhluta Frakklands. Svæðið er þekkt fyrir lavender akra vínrækt ólífulundi og litríkar þorp
Provence býður upp á ríka menningu hefðir góða matargerð og rólegt andrúmsloft. Það er vinsælt fyrir náttúru list sögu og afslappað lífsstíl við Miðjarðarhafið

24. Júní – Fimmtudagur – Barcelona – Siglingu lýkur

Komið til Barcelona kl. 06:30 og við förum til hótels um kl.09:00 eftir að hafa snætt morgunmat um borð.

Barcelona er höfuðborg Katalóníu þekkt fyrir sögufrægar byggingar, iðandi mannlíf og fallega strönd.

 

25. Júní – Föstudagur – Barcelona

Notum daginn til að skoða Barcelona, röltum niður Römbluna eða förum á ströndina.

26. Júní – Barcelona – Keflavík 

Flogið heim með Icelandair. Brottför kl.15:45 og lent í Keflavík kl.18:20

Fararstjóri: 

Fararstjóri í ferðinni er Kjartan Már Hallkelsson.

Kjartan er stúdent frá Versló, hefur rekið eigin fyrirtæki lengi og hefur mikla reynslu af ferðlögum og mannlegum samskiptum.

Ánægðir viðskiptavinir  okkar aðalmarkmið og við hjá Sula Travel leggjum metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.