Flogið til Aþenu með Icelandair og SAS. Brottför frá Keflavík kl.07:40 og lennt í Kaupmannahöfn kl. 12:55. Brottför með SAS kl.14:30 og lendum í Aþenu kl.18:50. Gistum í þrjár nætur og förum síðan í 7 nátta siglingu með NCL Pearl frá Aþenu (Pireus) þar sem komið er við í Mykonos í Grikklandi, Olympia Katakolon í Grikklandi, Corfu í Grikklandi, Kotor í Svartfjallalandi, Split í Króatíu, Koper í Slóveníu og svo endað í Ravena (Feneyjum). Ekið til Feneyja og þar gistum við í tvær nætur áður en við fljúgum með AIT Airways og Icelandair heim. Brottför frá Feneyjum kl. 11:20 og lennt í Róm kl.12.30. Brottför með Icelandair frá Róm kl.16:20 og lennt í Keflavík kl.19:10
Glæsiskipið Norwegian Pearl
Norwegian Pearl er glæsilegt skemmtiferðaskip.
- Þyngd: 93,530 brúttótonn
- Lengd: 294 metrar
- Breidd: Næstum 38 metrar
- Farþegar: Getur borið 2,344 farþega
- Áhöfn: 1,072 manns
- Byggt: 2006
- Endurbætur: Fór í mikla yfirhalningu árið 2021
Verð á mann miðað við tvo í svalaklefa kr. 740.000
Verð á mann miðað við tvo í innklefa kr.600.000
Verð á mann miðað við einn í svalaklefa kr. 980.000
Verð á mann miðað við einn í innklefa kr.840.000
| INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. More At Sea. Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað. |
| EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
7. Maí – Fimmtudagur- Keflavík – Aþena
Flogið til Aþenu með Icelandair og SAS. Brottför frá Keflavík kl.07:40 og lennt í Kaupmannahöfn kl. 12:55. Brottför með SAS kl.14:30 og lendum í Aþenu kl.18:50. Gist þar í þrjár nætur á Hótel Stanley 4 stjörnu hóteli í miðborg Aþenu skammt frá Akrapolis. Hér er hægt að skoða hótelið: www.thestanley.gr
Herbergi á Hótel Stanley

Aðstaðan á þakinu á Hótel Stanley

8. – 9. Maí – Aþena
Notum dagana til að skoða Aþenu enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg, kíkja á Acropolis, Ólympíuleikvanginn og rölta um í Plaka, gamla bænum við rætur Acrapolis. Höfuðborg Grikklands er full af sögu og fallegum minnisvörðum um þá sögu. Aþena er höfuðborg Grikklands og ein elsta borg Evrópu, með sögu sem spannar yfir 3.000 ár. Hún er talin vagga lýðræðis og mikilvæg miðstöð fornrar grískrar menningar og heimspeki. Frægasta kennileiti borgarinnar er Akrópólis með Parþenonhofinu, sem gnæfir yfir borginni. Í Aþenu má einnig finna fjölmörg söfn, sögulegar minjar og líflegt mannlíf. Í dag er Aþena nútímaleg stórborg sem sameinar forna arfleifð og nútímamenningu.

10. Maí- Sunnudagur- Siglingin hefst
Brottför frá hóteli um kl.11:00. Pearl leggur úr höfn klukkan 17:00.


11. Maí – Mánudagur – Mykonos
Leggjum að bryggju eða vörpum ankerum úti fyrir eynni kl 07:00 og dveljum þar til kl 17:00. Skemmtileg eyja og Mykonos bærinn er sérlega skemmtilegur og gaman að labba þar um og villast í þröngum og óskipulögðum götum bæjarins.
Mykonos er grísk eyja í Eyjahafi og hluti af Kýklöðum. Hún er fræg fyrir hvítkalkaðar byggingar, þröngar steinlagðar götur og bláan sjó.
Eyjan er vinsæl fyrir fallegar strendur og líflegt næturlíf, sérstaklega yfir sumartímann. Þekkt kennileiti eru vindmyllurnar í Mykonos-bæ og svæðið Litla Feneyjar við höfnina.
Mykonos er þekkt fyrir sólríkt veður, fallegt umhverfi og líflega stemningu.

12. Maí- Þriðjudagur – Katakolon/Olympia
Komið til Katakolon 09:00 og farið kl. 19:00. Lítill bær, aðeins um 500 íbúar, og tilvalið að fara upp í Olympíu hina fornu og skoða meðal annars staðinn þar sem ólympíueldurinn er kveiktur í aðdraganda Ólympíuleikanna. Í Katakolon er líka pínulítið safn sem vert er að skoða. Kataklon er þekktur sem vinsæll viðkomustaður skemmtiferðaskipa. Helsta aðdráttaraflið í nágrenninu er fornleifasvæðið í Ólympíu, þar sem Ólympíuleikarnir fornu voru haldnir. Í bænum sjálfum eru lítil kaffihús, veitingastaðir og fallegt sjávarútsýni. Katakolon er rólegur og sjarmerandi staður sem sameinar sögu og strandstemningu.
Þá erum við komin til eyjunnar Corfu. Lagt að bryggju kl 07:00 og farið á ný kl 17:00.
Corfu (Kerkyra) er grísk eyja í Jónahafi, nálægt vesturströnd Grikklands. Hún er þekkt fyrir gróskumikið landslag, fallegar strendur og blöndu af grískum, feneyskum og breskum áhrifum í arkitektúr og menningu.Gamli bærinn í Corfu er á heimsminjaskrá UNESCO og einkennist af þröngum götum, virkisveggjum og sögulegum byggingum. Eyjan er vinsæll ferðamannastaður með hlýtt loftslag, fallegt útsýni og ríka sögu.

14. Maí – Fimmtudagur- Kotor
Vörpum ankerum kl 07:30 og farið aftur kl 18:00. Falleg sigling inn að þessum bæ. Farið í land með léttabátum. Kotor er sögufræg strandborg í Svartahafi, í Montenegro, staðsett við fallega Kotor-flóa. Borgin er þekkt fyrir vel varðveitta miðaldaborgarmúra, þröngar götur og torg, sem gefa henni miðaldarblæ.Kotor er á heimsminjaskrá UNESCO og í kringum borgina má finna virki á hæðum og fallegt fjallasýn. Borgin er vinsæll ferðamannastaður fyrir sögu, arkitektúr og náttúrufegurð.
![]()

15. Maí – Föstudagur -Split
Vörpum ankerum kl 07:00 og farið aftur kl 17:00. Falleg sigling inn að þessum bæ. Split er sögufræg borg með marga áhugaverða staði, skemmtileg veitingahús og krár. Borgin er þekkt fyrir frábæra sjávarrétti og skemmtilegar krár. Einnig er ströndin afar falleg. Split er annar stærsti bær Króatíu, staðsettur við Adriyahafið á miðju strandlengjunni. Borgin er fræg fyrir sögulegan miðbæ sinn sem byggir á Rómverska keisara Diocletianusar höll, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.Split sameinar fornleifar, lifandi torg, kaffihús og verslanir með nútímalegu borgarlífi. Borgin er einnig miðstöð fyrir ferðamenn sem heimsækja nærliggjandi eyjar eins og Hvar og Brač.
![]()
16. Maí – Laugardagur – Koper
Komið til Koper kl.08:00 og farið kl.19:00. Koper er fimmta stærsta borg Slóveníu. Staðsett í Istran héraðinu i suðvestur hluta landsins. Mjög skemmtileg borg og margt að skoða þar. Koper er hafnarborg í vesturhluta Slóveníu við Adríahafið. Hún er ein af helstu hafnarborgum landsins og mikilvæg fyrir verslun og ferðamennsku. Borgin hefur sögulegan miðbæ með þröngum götum, torgum og byggingum frá miðöldum, þar á meðal Praetorian-höllina og Koper-dómkirkjuna. Koper sameinar strandlíf, menningu og sögulega arfleifð í smekklegri borgarstemningu.

17. Maí – Sunnudagur – Feneyar (Ravena)
Komið til Ravena kl.06:00. Ekið til Mestre kl. 09:00 og á hótelið okkar, Ambasicatori Mestre sem er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel. Við gistum í Mestre (Feneyjum) í tvær nætur. Fararstjóri fer með þá sem vilja í labbitúr um Feneyjar.
Herbergi á Ambasicatori Mestre sem er hluti af Hilton keðjunni.

![]()
18. Maí – Mánudagur – Feneyjar (Mestre)
Notum daginn til að skoða Feneyjar enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Einnig er gaman að kíkja á Mestre, bæinn sem við gistum í.Feneyjar (Venezia) er einstök borg á norðurhluta Ítalíu, byggð á um 100 litlum eyjum í Feneyjalóninu við Adríahaf. Borgin er þekkt fyrir síki sín í stað gata, gondólur og fjölda fallegra brúa, eins og Rialto-brúna og Brú andvaranna. Markúsartorgið (Piazza San Marco) með Markúsarkirkjunni er miðpunktur borgarinnar, og Feneyjar eru einnig þekktar fyrir árlega Feneyjakarnavalið og ríkulega listamenningu. Borgin var áður öflugt verslunarveldi á miðöldum og nýtur í dag heimsfrægðar sem ferðamannastaður.

19. Maí Feneyjar – Keflavík
Flogið með AIT Airways og Icelandair heim. Brottför frá Feneyjum kl. 11:20 og lennt í Róm kl.12.30. Brottför með Icelandair frá Róm kl.16:20 og lennt í Keflavík kl.19:10
Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.


























