Brottför 20. febrúar, heimkoma 13. mars.
Panamaskurðurinn frá Miami með BLISS
Flogið með Icelandair til Orlando 20. febrúar og gist þar í tvær nætur. Siglt er frá Miami – 22. febrúar og komið við í Cartagena í Kólombíu, Colón, Panama, farið upp skipastigan og siglt um Gatun vatnið, siðan er Puntarenas, Costa Rica, Puerto Quetzal í Gvatemala, Puerto Vallarta og Cabo San Lucas í Mexíkó áður en lagst verður að bryggju í Los Angeles. Þar gistum við í þrjár nætur áður en flogið verður heim í gegnum Seattle og lent í Keflavík snemma morguns þann 13. mars.
Glæsiskipið Norwegian Bliss
Norwegian Bliss var smíðað 2018. Það er rúmlega 168.000 brúttótonn, 333 m á lengd og 41 metri á breidd. Það rúmar 4.000 farþega og í áhöfn eru 1.7216 manns. Um borð er fjöldi veitingastaða, barir, diskótek, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa, leikhús sem tekur yfir 1000 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.
Verð á mann í svalaklefa – 980.000 kr.
Verð á mann í innklefa – 820.000 kr.
Verð í svalaklefí – einbýli – 1 400.000 kr.
Verð í innklefi – einbýli – 1 020.000 kr.
INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, fimmtán nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”:Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. Ath. Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.Matarpakkinn: Út að borða á sérstöku veitingastöðunum: tvisvar sinnum fyrir gestir í svalaklefi og einu sinni fyrir gestir í innklefar og stúdíóklefar.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir.Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega. |
EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
20. febrúar – fimmtudagur – Keflavík – Orlando
Flogið til Orlando með Icelandair þar sem gist verður í tvær nætur á Avanti Palms The Point Hotel.
21. febrúar – föstudagur – Orlando
Frjáls dagur í Orlando, golf, sólbað, skemmtigarðar eða verslanir, bara það sem fólk vill.
22. febrúar – laugardagur – Sigling hefst
Farið frá hótelinu eftir morgunverð og til Miami þar sem Bliss bíður okkar. Lagt úr höfn kl 16:00.
23. – 24. febrúar – sunnudagur og mánudagur – á siglingu
Verðum á siglingu báða dagana og um að gera að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða
25. febrúar – þriðjudagur – Kólombía, Cartagena
Komið til Cartagena í Kólombíu kl 07:00 og farið kl 16:00.
26. febrúar – miðvikudagur – Colón, Panama
Colón er borg og höfn í Panama, við Karíbahaf, nálægt inngangi Atlantshafsins í Panama-kanalinn. Hún er höfuðborg Colón-héraðs í Panama og hefur heitið Panama-borgarinnar. Borgin hefur upplifið eldgos og eldbruna, en hefur samt endurvakið sig og er nú spennandi áfangastaður. Komið til Cólon kl. 8:30 og farið kl. 19:00.
27. febrúar – fimmtudagur – Panamaskurð
Förum upp skipastigann snemma morguns, siglum á Gatun vatninu í björtu og förum síðan niður á ný, en nú Kyrrahafsmegin.
28. febrúar – Föstudagur – á siglingu
Verðum á siglingu allan dag. Kíkja í laugina, fara á bókasafnið eða bara gera ekki neitt.
01. mars – Laugardagur – Puntarenas, Kosta Ríka
Komum til Puntarenas kl. 7:00 og förum kl. 18:00.
02. mars – Sunnudagur – á siglingu
Alltaf nóg um að vera um borð, sólbað, heilsulyndin, alls konar námskeið og margt fleira.
03. mars – mánudagur – Puerto Quetzal
Komum til Puerto Quetzal í Gvatimala kl 07:00 og förum á ný kl 18:00
04. og 05. mars – þríðjudagur/miðvikudagur – á siglingu
Á siglingu í báða dagana. Kíkja í laugina, fara á bókasafnið eða bara gera ekki neitt.
06. mars – Fimmtudagur – Puerto Vallarta, Mexico
Komið hingað kl 07:00 og farið á ný kl 15:00. Fallegur bær og stutt er á fallegar strendur þar sem gaman er að snorkla og kafa.
07. mars – Föstudagur – Cabo San Lucas, Mexico
Komið hingað kl 07:00 og farið á ný kl 14:00. Farið í land með léttabátum. Skemmtilegur 200.000 manna bær sem er þekktastur fyrir strendur í nágrenninu, ýmiskonar vatna leiki og næturlífið.
08. mars – Laugardagur – Á siglingu
Síðasta tækfifærðið til að gera eitthvað skemmtilegt um borð á meðan við tökum stefnuna á Los Angeles. Hvers vegna ekki að prófa kappaksturbrautina?
09. mars – Sunnudagur – Los Angeles, California – Siglingu lýkur
Komum til Los Angeles kl 07:00 og förum frá borði um kl 11:00, förum upp á hótel og gistum þar í þrjár nætur.
10. mars – 11. mars – Mánudagur og Þríðjudagur – Los Angeles
Nóg um að vera í Englaborginni og mikið að skoða.
12. mars – Miðvikudagur – Heimferð
Farið út á flugvöll snemma morguns og fljúgum til Seattle og síðan heim með Icelandair og lent snemma að morgni 13. mars í Keflavík.
Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.