Brottför 24. maí – Heimkoma 07. júní 2025.

Flogið til Barcelona með Icelandair 23. maí og gist þar í tvær nætur áður en 9 nátta siglingin hefst. Komið er við í Cannes í Frakklandi, Livorno, Róm og Napolí á Ítalíu, Cagliari á Sardiníu, Mallorka og Ibiza áður en siglingunni lýkur í Barcelona. Gist þar í þrjár nætur áður en haldið er heim.

Glæsiskipið Norwegian Breakaway

Norwegian Breakaway var tekið í gegn 2020, en það var smíðað árið 2013. Það er tæplega 146.000 brúttótonn, 326 m á lengd og 52 metra breitt. Farþegar geta verið 3.903 og áhöfnin telur 1.657 og siglingarhraði er 23 hnútar. Um borð eru um 10 veitingastaðir, mörg kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur um 800 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa 610.000 og í innklefa 535.000 kr.

Verð í svalaklefí – einbýli – 790 000 kr.

Verð í innklefi – einbýli – 660 000  kr.

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.

More At Sea

Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.

Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum

Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.

WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.

Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa.

Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

ATH: Fyrir þá sem bókuðu fyrir 1. Október 2024 þá uppfærist aðeins drykkjarpakkinn en út að borða pakkinn er óbreyttur eins og hann var.

EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

24. maí – laugardagur – Keflavík – Barcelona

Flogið með Icelandair til Barcelona og lent þar um kl 15:00. Ekið upp á Hotel Catalonia Plaza 4 stjörnur þar sem gist verður í tvær nætur.

24. maí – Sunnudagur – Sigling hefst

Leggjum af stað frá hótelinu kl. 12:00 og ökum niður á bryggju þar sem við förum um borð í Breakaway, sem er með stærstu skemmtiferðaskipum í heimi, 165.000 tonn. Brottför er kl. 17:00.

25. maí –

26. maí – mánudagur –  Cannes

Komum til Cannes í Frakklandi kl 08:30, förum í land með léttabátum og léttum síðan ankerum kl 18:00

27. og 28. maí – þríðjudagur, miðvikudagur – Livorno

Komið til Livorna kl. 06:30 og lagt úr höfn á ný kl. 19:00 daginn eftir. Hér er tilvalið að skjótast til borgarinnar Flórens, sem er gríðarlega falleg borg og virkilega gaman að skoða miðbæinn þar. Ekki er heldur óvitlaust í leiðinni að renna við í Pisa og kíkja á skakka turninn. Cinque Terre er einnig einstaklega skemmtilegur staður. og svo er líka gaman að rölta um Livornobæinn.

29. maí – fimmtudagur – Civitavecchia / Róm

Lagt við bryggju í Civitavecchia kl. 06:30 og farið af stað á ný kl. 19:00. Allar leiðir liggja til Rómar og þar er mikið og margt að skoða. Athugið þó að Róm var ekki byggð á einum degi og ekki er hægt að skoða hana alla á einum degi. Páfagarður, Colloseum, Roman Forum, Vatikanið og mörg falleg torg víða um borgina er meðal þess sem hægt er að kíkja á ef fólk vill fara inn til Rómar.

30. maí – föstudagur – Napolí

Komið til Napolí kl. 06:30 og lagt úr höfn kl. 17:00. Hér er margt hægt að gera og ef fólk hefur ekki komið til Pompei og skoðað rústirnar þar þá er það mjög áhugavert. Hægt er að skjótast með báti yfir til Kaprí, sem er lítil og falleg eyja. Einnig er mjög gaman að fara til Sorrento, en leiðin þangað er mjög brött og falleg.

31. maí – laugardagur – Cagliari á Sardiníu

Lagt við bryggju á Sardiníu kl 09:00 og farið á ný kl 16:00. Cagliari er höfuðborg eyjarinnar og stendur á suðurodda hennar. Á eynni búa um 160.000 manns og borgin sjálf er þekkt fyrir skemmtilegan gamlan miðbæ og mikð af fallegum byggingum.

1. júní – sunnudagur – Ibiza

Komið til Ibiza kl 13:30 og farið á ný kl 22:00. Skemmtilegur bær, stutt á Bossa ströndina ef fólk vill í sólbað eða fara í skoðunarferðir upp í sveit á þessari fögru eyju, sem er þó einna þekktust fyrir fjörugt næturlíf. Skemmtilegur miðbær.

2. júní – mánudagur – Palma á Mallorka

Komið er til Palma á Mallorka kl. 08:00 og farið þaðan kl. 17:00. Margt skemmtilegt að gera hér, fara á stönd, í flottar skoðunarferðir eða bara rölta upp í bæ og kíkja aðeins í búðir.

3. júní – þriðjudagur – Siglingu lýkur

Komið til Barcelona snemma morguns. Farið frá borði um kl 08:00 og haldið upp á Hotel Catalonia Plaza þar sem við gistum í þrjár nætur. Tilvalið að nota dagana til að skoða það sem menn komust ekki yfir fyrir siglinguna.

4. – 7. júní. Barcelona.

Notum dagana til að skoða þessa skemmtilegu borg. Laugardaginn. 7. júní förum við út á flugvöll upp úr hádegi og fljúgum heim með Icelandair, lendum í Keflavík um klukkan 18:20.

Fararstjóri:

Fararstjóri:

Fararstjóri í ferðinni er Sigrún Jónsdóttir. Sigrún hefur mikla reynslu sem fararstjóri og leiðsögumaður, bæði hér heima og eins erlendis. Hún lauk námi við Leiðsögumannaskólann 1987 og lærði mannfræði við Háskóla Íslands og hefur starfað við leiðsögn meira og minna frá árinu 1986.

Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.