Asíuævintýri með Norwegian Jade frá Singapore til Hong Kong.

ATH aðeins 30 sæti í boði í þessa ferð.

Brottför 6. febrúar – Heimkoma 25. febrúar

12 nátta sigling, tvær nætur í Singapore og tvær nætur í Hong Kong.

Flogið til Singapore með Icelandair og Singapore Airlines. Komið til Singapore 7. feb og siglt með Norwegian Jade frá Singapore 9.  til Ko Samui á Taílandi, Laem Chabang á Taílandi, Phu Myu Ho Shi Minh City í Víetnam, Muara í Brúnei, Kota Kinabalu í Malasíu, Pureto Princesa á Filippseyjum, Coron á Filippseyjum og endað í Hong Kong.

Glæsiskipið Norwegian Jade

Hvað er Norwegian Jade?

Smíðað árið 2006 og var upphaflega kallað Pride of Hawaii áður en það fékk nafnið Norwegian Jade árið 2008.

Rúmar um 2,400 farþega og meira en 1,000 áhafnarmeðlimi.

Það er um 294 metrar langt og hefur nokkur hundruð herbergi/staterooms með mismunandi gerðum, þar á meðal svítum og herbergjum með svölum.

Hvað finnur þú um borð?

Skipið er eins og fljótandi hótel/resort — með fjölda skemmtunar og þjónustu stöðum:

Veitingastaðir & bari: 10+ mismunandi veitingastaði og bari, allt frá franskri/ítalskri matargerð til grill- og borgara staða.

Skemmtun: Lifandi sýningar, dans, leikhús og næturklúbbar.

Afþreying: Sundlaugar, heilsulind (spa), casino, spilakassar, líkamsrækt, leikjatímar fyrir krakka og fleira.

Freestyle Cruising: Þú þarft ekki að hafa fasta matmálstíma eða borð — þú velur sjálfur hvenær og hvar þú borðar og skemmtir þér.

Norwegian Jade var síðast endurnýjað (refurbished) í 2022, þegar skipið fór í þriggja vikna dry dock til að uppfæra áhafnar íbúðir, gistirými, veitingastaði, almenn rými og tækni — sem hluti af almennri uppfærslu til að halda skipinu nútímalegu

Að auki. Skipið mun fara aftur í mikilvæga endurnýjun frá 19. apríl til 4. maí 2026 þar sem ýmsar nýjungar verða settar inn, svo sem Vibe Beach Club (vinsælt svæði fyrir fullorðna), nýr Starbucks á dekki 7, uppfærðar veitingastaðir og önnur frágangsbreyting til að samræma það nýrri skipum í flota NCL.

Til að skoða Jade betur þá er hér slóð á skipið: https://www.ncl.com/fr/en/cruise-ship/jade

Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa kr. 1.299.900 og  miðað við tvo í innklefa kr. 1.091,900

Einstaklingsálag:

Svalaklefi – 547,900

Innklefi – 375,900

 

INNIFALIÐ:

Flug til Singapore og frá Hong Kong til Keflavíkkur, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips.

Gisting með morgunverði í tvær  nætur í Singapore fyrir siglinguna og tvær nætur í Hong Kong eftir siglinguna.

Þrettán nátta sigling, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. Íslensk fararstjórn.

Innifalið: More At Sea Pakkinn. Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

EKKI INNIFALIÐ:

Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. Vsk á mat og drykk í sumum löndum.  Ath hádegis og kvöldverðir eru ekki innifaldir þegar dvalið er á hótelum fyrir og eftir siglingu.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

6. feb  – Keflavík – Singapore

Flogið til Singapore með Icelandair og Air Singapore og lent daginn eftir eða þann 7 . feb.

Gallery image of this property

7. feb – Singapore.

Lent kl 19:00 í Singapore og farið beint á hótelið. Gist á glæsihótelinu Parkroyal miðsvæðis í Singapore

Singapore Photos, Download The BEST Free Singapore Stock ...

8. feb –  – Singapore

Frjáls dagur í Singapore. Hér er tillgaga um hvað er hægt að gera á góðum degi í Singapore.

Morgun

1.Marina Bay Sands & Merlion

Labbaðu í kringum Marina Bay

Taktu klassísku myndina með Merlion

Ef budget leyfir: kaffi eða stutt stopp uppi á SkyPark útsýnispallinum

2Gardens by the Bay

Skoðaðu Supertree Grove (ókeypis að labba um)

Ef þú vilt fara inn: Cloud Forest er algjört highlight 🌿


Hádegi

 Hawker centre (skyldustopp!)
Veldu eitt:

Lau Pa Sat (miðsvæðis, frábært satay)

Maxwell Food Centre (frægur chicken rice)

Prófaðu: Hainanese chicken rice, laksa eða char kway teow


Síðdegi

 Chinatown eða Little India

Chinatown: hof, götur, souvenirar

Little India: litir, kryddlykt, Sri Veeramakaliamman hofið 
(Ef þú vilt eitthvað „hippara“: Tiong Bahru)

5.Orchard Road (ef þú fílar shopping)

Stutt stopp, jafnvel bara til að sjá hversu extra þetta er


Kvöld

6.Clarke Quay eða Boat Quay

Drykkur við ána

Fín stemning þegar sól sest

7Kvöldútsýni
Veldu eitt:

Ce La Vi / Atlas / annan rooftop bar

eða Supertree ljósasýningin (ókeypis, mjög nice


 Pro tips

MRT (neðanjarðarlestin) er hraðvirk og easy 🚇

Létt föt – heitt og rakt allan daginn

Singapore er mjög öruggt, líka á kvöldin

9. feb – Siglingin hefst

Brottför frá hótelinu kl.12:00 og ekið til skips. Brottför frá Singapore kl.16:00

10.  feb- Sigling

Á siglingu allan daginn og um að gera að skoða skipið og læra aðeins á það og auðvitað njóta þess sem boðið er uppá um borð, bæði í mat, drykk og ekki síður skemmtilegri dagskrá.

11. feb – Ko Samui

Leggjum að bryggju í Ko Samui kl. 07:00. Brottför frá Ko Samui kl.17:00

Koh Samui er tropísk eyja í Taílandi í Taílandsflóa og er þekkt fyrir hvítar sandstrendur pálmatré hlýjan sjó og afslappað andrúmsloft Eyjan er vinsæl fyrir slökun strandlíf spa náttúru og fjölbreytt afþreyingu fyrir ferðamenn.

Á Koh Samui er matur fjölbreyttur og mjög bragðmikill þar sem taílensk matargerð ræður ríkjum Má þar nefna ferskan sjávarrétt grillaðan fisk rækjur og krabba kryddaðar núðluréttir eins og pad thai og pad see ew sterkar súpur á borð við tom yum og mildari karrírétti með kókosmjólk Á eyjunni er einnig mikið úrval af götumat einföldum strandveitingastöðum og alþjóðlegum veitingahúsum allt frá ítölskum til vegan valkosta

12. feb – Laem Chabang

Komum til Laem  kl. 06:45 og lagt úr höfn á ný kl. 18:00.

Laem Chabang er stór hafnarbær í Taílandi, staðsettur austan við Bangkok við Taílandsflóa. Bærinn er þekktur fyrir iðnaðarhöfn sína og aðgengi að ströndum og eyjum í nágrenninu. Maturinn í Laem Chabang sameinar staðbundna taílenska rétti með ferskum sjávarréttum og götumat þar sem hægt er að njóta rækja, krabba, kryddaðra núðlurétta, karrírétta og súpa eins og tom yum á hefðbundnum veitingastöðum eða í strandkrám.

13. feb – Sigling

14. feb – Phu My Ho Chi Minh City

Komið kl.08:00 og farið kl.19:00.

Phu My er hafnarhverfi í Ho Chi Minh-borg í Víetnam, staðsett suðaustan við miðborgina og mikilvægt sem iðnaðar- og flutningamiðstöð. Svæðið tengist skipasiglingum og verslun og býður einnig upp á ferska sjávarrétti, götumat og hefðbundna víetnamska rétti eins og pho, bun cha og ferska spring rolls í nærliggjandi veitingastöðum

Til gömlu  Saigon (District 1 í Ho Chi Minh-borg), þá er hún um 25–30 kílómetrar eftir vegi, fer eftir hvaða leið er valin.
Með bíl eða skutlu tekur ferðin venjulega 30–50 mínútur án mikils umferðar.
Í háum umferðar tíma getur ferðin tekið allt að 1–1,5 klukkustund.
Ferðin frá Phu My til Gömlu Saigon (District 1, Ho Chi Minh-borg) er þægileg og býður líka smá innsýn í hversdagslíf í Víetnam.

Með bíl eða taxi

Þetta er um 25–30 kílómetrar, fer eftir leið.

Venjulegur akstur tekur 30–50 mínútur, en í háum umferðar tíma getur það tekið allt að 1–1,5 klukkustund.

Á leiðinni sérðu iðnaðarhverfi, hafnarsvæði og úthverfi borgarinnar áður en þú kemur inn í miðbæinn með gömlu byggingunum, verslunum og kaffihúsum.

Með almenningssamgöngum

Strætó og rútuþjónusta eru tiltölulega ódýr en töluvert hægari, allt að 1,5–2 klukkustundir.

Þetta er góður kostur ef þú vilt kynnast daglegu lífi heimamanna og sjá götulíf og markaði á leiðinni.

Áhugaverðir staðir á leiðinni

Phu My port, fyrir áhugafólk um skip og iðnað

Litlir staðbundnir markaðir með ferskum ávöxtum og götumat

Fyrir framan borgarmörk, svæði með kaffihúsum og sölustöðum fyrir götumat þar sem hægt er að smakka pho, banh mi og ferska spring rolls.

Fyrir þá sem ekki kaupa skoðunarferð á vegum NCL eru á eigin ábyrgð ef þeir tefjast, skipið bíður ekki eftir þeim sem eru á eigin vegum í landi og mæta ekki á réttum tíma um borð.

15. feb – Sigling

 

16. feb – Muara

Komið kl.08:00 og farið kl.17:00

17. feb – Kota Kinabalu

Komið kl.07:00 og farið kl.15:00

18. feb – Puerto Princesa 

Komið kl.10:00 og farið kl.18:00

19. feb Coron

Komið kl.07:00 og farið kl.16:00

20. feb Sigling

21. feb Hong Kong

Komið kl.11:00 og farið kl.23:59

22. feb Hong Kong

Komið kl.07:00 til Hong Kong og brottför til hótels kl.09:00

23. feb Hong Kong

Frjáls dagur í Hong Kong

24. feb Hong Kong – Heimferð

Fararstjóri:

Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við Skúli Unnar Sveinsson - Fararstjóri

blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.

Kortið er ekki nákvæmlega rétt leið, vantar seinni hluta siglingarinnar um Gíbraltar.

Jade 1600x1033
Jade 1600x1033
Jade 1920x600
Norwegian Jade