Þakkir fyrir frábæra ferð

Sæll Skúli,Valetta á Möltu
Enn og aftur kærar þakkir fyrir frábæara ferð og góða farastjórn. Þú stóðst þig alveg upp á tíu og meira en það.

Siglinginn var í alla staði alveg frábær og yndisleg! Frastjórn Skúla Unnars Sveinssonar var til fyrirmyndar og hélt hann vel utan um hópinn bæði á sjó og landi.
Yndislegur hópur af fólki, frábært veður og góður matur. Gætum alveg hugsað okkur að fara aftur með Norwegian skipafélaginu þar sem þjónustan og allur aðbúnaður um borð var til fyrirmyndar. Mikið úrval af mat og drykkjum ásamt fjölbreytni í afþreyingu.
Ferðin með Súla travel í Gríska eyjahafið var fjölbreytt og margir skemmtilegir staðir heimsóttir.  Malta og Mykanos voru þeir staðir sem stóðu upp úr hjá okkur hjónunum, þrátt fyrir að við nutum þess að fara í land alls staðar þar sem boðið var upp á það.  Mæli eindregið með slíkri ferð!!!
Með kærri kveðju,
Edda og Ed.