Mjög góður kostur í skemmtisiglingum

Sæll Skúli Unnar og takk fyrir síðast,
Við hjónin þökkum kærlega fyrir mjög svo góða ferð með Sula Travel um Gríska eyjahafið 28.8 til og með 8.9.2024.
Við viljum hrósa þér fyrir afar gott skipulag allan tímann, frábær fararstjóri í alla staði. Greinilega vanur að telja allan hópinn, sjá til þess að allir skili sér fyrir og eftir ferðir. Einnig í nokkrum skoðunarferðum að vera síðastur þegar þörf var á leigubílum.
Einnig má hrósa skipafélaginu fyrir mjög gott skipulag, bæði við innritun og útritun, greinilega gert þetta allt margsinnis.
Öll aðstaða um borð til fyrirmyndar, frábærir veitingastaðir og starfsfólkið fyrsta flokks og ekki má gleyma matnum.
Mjög svo áhugaverðir staðir að skoða, nokkrir mjög góðir, má þar nefna Santorini, Mykonos, Katakolon, Valletta og Róm, hinir sæmilegir.
Okkur fannst afar skemmtilegt að kynnast þessum ágætu ferðafélögum – allir með sinn sjarma.
Að endingu – takk fyrir okkur. Við munum klárlega mæla með Sula Travel sem mjög góðan kost í skemmtisiglingum.
Kær kveðja,
Gunnar og Alla