Frá Reykjavík til Southampton 13. – 23. júní.

Lagt af stað frá Skarfabakk kl 18:00, komið við á Ísafirði, Akureyri, Álasundi, Geiranger og Bergen í Noregi, Amsterdam í Hollandi og Brussel í Belgíu (Zeebrugge) áður en lagst er að bryggju í Southampton 23. júní. Ekið út á flugvöll og flogið heim með Icelandair.

Glæsiskipið Norwegian Prima

Norwegian Prima er nýjasta skipið í flota NCL,142.500 brúttótonn, 294 m á lengd og 41 metri breitt. Farþegar eru 3.219 og 1.386 eru í áhöfn þess. Skipið var smíðað árið 2022 og er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa er 550.000 og í innklefa 430.000

INNIFALIÐ: Flug frá London, akstur frá skipi til flugvallar. Tíu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”. Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi. Matarpakkinn: tvisvar sinnum (innklefar og stúdíóklefar einu sinni) út að borða á sérstöku veitingastöðunum. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir. Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.
EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

13. júní. Sigling hefst

Hittumst á Skarfabakka í hádeginu, innritum okkur í skipið og förum um borð. Prima leggur af stað kl 18:00.

14. júní Ísafjörður

Komum til Ísafjarðar kl 08:00 og leggjum af stað á ný kl 18:00.

15. júní. Akureyri

Leggjum að bryggju kl 06:00 og lagt í hann á ný kl 16:00.

16. júní. Á siglingu

Nú er siglt yfir hafið áleiðis til Noregs. Um að gera að njóta þess sem skipið hefur upp á að bjóða, prófa go-kart bílana, farðu í pílu eða minigolf, glæsilegar rennibrautir eru alltaf spennandi og svo má auðvitað bara slappa af í sólbaði, eða í heilsulindinni.

17. júní. Álasund

Höldum upp á þjóðhátíðardaginn í Álasundi í Noregi, en þangað komum við kl 11:00 og förum á ný kl 22:00.

18. júní. Geiranger

Gríðarlega fallegt að sigla til Geiranger en þangað komum við kl 06:00 og förum á ný kl 17:00. Hér er farið í land með léttabátum. Endilega að vera uppi á dekki þegar við siglum út fjörðinn.

19. júní. Bergen

Komið til Bergen í Noregi kl 08:00 og farið á ný kl 17:00. Vonandi rignir ekki mikið þennan daginn, en sagt er að það rigni alltaf (eða mjög oft) í þessum fallega bæ.

20. júní. Á siglingu

Á siglingu allan daginn á leið okkar til Hollands. Um að gera að njóta þess sem í boði er um borð, en af nógu er að taka.

21. júní. Amsterdam

Komum til Amsterdam í Hollandi kl 07:00 og förum á ný kl 17:00. Gaman að kíkja í bæinn enda borgin litskrúðug og ekki mannlífið síður.

22. júní. Brussel

Komum til Brussel í Belgíu kl 07:00 og farið þaðan á ný kl 17:00.

23. júní. Siglingu lýkur

Komum til Southampton kl 06:00. Förum frá borði kl 09:00, beint út á flugvöll í London og heim með Icelandair.

Fararstjóri:

Skúli Unnar Sveinsson - FararstjóriFararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.