Ævintýrasigling frá Ástralíu til Nýja Sjálands með Norwegian Spirit
Brottför 22. janúar og heimkoma 9. febrúar
Spennandi lúxusferð á framandi slóðir. Siglt frá Ástralíu til Nýja Sjálands. Komið til níu áfangstaða á þessari 11 nátta siglingu, gist í Sidney í þrjár nætur fyrir siglingu og 3 nætur í Auckland eftir siglingu. Gist á glæsilegum hótelum, siglt með glæsilegu skipi og flogið með góðum flugfélögum, Icelandair, Emirate og Air New Zealand. Alla ferðina er fararastjórinn okkar með hópnum. Boðið er uppá skoðnarferðir í Sidney og Aukland auk skoðunarferða á vegum skipafélagsins í öllum þeim viðkomustöum sem skipið kemur til. Einnig býður fararstjórinn okkar uppá bæjarrölt i hverri höfn þar sem því verður komið við.
Viðkomustaðir eru Sidney, Eden, Burnie Tasmania, Melborne, Milford Sound, Dunedin í Ástralíu og Lyttleton, Tauranga og Auckland á Nýja Sjálandi
Glæsiskipið Norwegian Spirit
Norwegian Spirit var smíðað árið 1998 og er 75.000 brúttótonn, 268 metra langt og 35 metra breitt. Spirit var endurnýjað 2024 og er afar glæsilegt. Farþegar eru 2.000 og í áhöfn eru 980. Um borð eru fjöldi veitingastaða, kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur yfir 1000 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.
Verð á mann miðað við tvo í svalaklefa 1.599.000 kr.
Verð á mann miðað við tvo í klefa með glugga kr. 1365.900 kr.
Einstaklingsálag:
Svalaklefi (BC) 647.900 kr.
Gluggaklefi – 455.900 kr.
| INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu, öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. Innifalið er Free at Sea pakkinn sem samanstendur af: Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ hvert glas er innifalið. Matarpakkinn: fjórum sinnum út að borða á sérstöku veitingastöðunum. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir. |
| EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
22. janúar. Keflavík –
Flug með Icelandair til Kastrup og þaðan með Emirate til Dubai og áfram til Sidney og lent í Sidney þann 23. janúar. Nánari flugtímar verða birtir fljótlega.
23. jan – Sidney

Sydney er stærsta og ein þekktasta borg Ástralíu og er heimsþekkt fyrir kennileiti eins og óperuhúsið og Harbour Bridge. Sydney býður upp á blöndu af nútímalegu borgarlífi og afslöppuðu strandlífi, með vinsælum ströndum á borð við Bondi og Manly. Þar má einnig finna fjölbreytta menningu, öflugt listalíf, góðan mat og hlýtt loftslag sem gerir borgina að eftirsóttum áfangastað bæði fyrir landsmenn og ferðamenn.
24. jan – Sidney – Frjáls dagur

Morgunn
Morgunverður í The Rocks – elsta hverfi borgarinnar, mjög notalegt.
Sydney Opera House – labbaðu í kring, taktu myndir, eða bókaðu stutta leiðsögn ef þú vilt.
Harbour Bridge – ganga yfir (frítt!) eða bara njóta útsýnisins neðan frá.
Hádegi
Circular Quay – fullt af veitingastöðum við höfnina.
Royal Botanic Garden – róleg ganga með frábæru útsýni yfir höfnina.
Síðdegi
Bondi Beach – klassík.
Bondi → Coogee Coastal Walk (ef veður er gott) – stórkostlegt strandútsýni.
Kvöld
Kvöldmatur í Bondi eða Surry Hills (mjög hip staður).
Drykkur á rooftop-bar, t.d. í miðbænum.

25. jan – Siglingin hefst
Ökum niður að höfn og förum um borð í Jade sem leggur í hann kl 16:00. Fundur með fararstjóra, labbitúr um skipið til að sýna farþegum það og sameignlegur kvöldverður.

26. jan. – Eden Ástralía
Komum kl 07:00 og förum á ný kl 14:30. Eden er lítill og heillandi strandbær á Sapphire Coast í New South Wales, Ástralíu. Bærinn er þekktur fyrir stórbrotna náttúru, ósnortnar strendur og frábæra möguleika á hvalaskoðun. Þar ríkir róleg og afslöppuð stemning, með fallegum gönguleiðum, sjávarútsýni og sterkri tengingu við sögu og náttúru svæðisins.

Komum kl 10:00 og förum aftur kl 17:00. Burnie er strandbær á norðurströnd Tasmaníu. Fallegt landslag og vaxandi listalíf. Bærinn sameinar iðnaðarsögu, notalegt miðbæjarlíf og náttúruupplifanir við sjóinn, með afslappaðri stemningu og sterkri tengingu við heimamenn.

Komum kl 07:00 og förum kl 17:00. Melbourne er lífleg og fjölbreytt borg í Ástralíu, þekkt fyrir menningu, listir, kaffihúsalíf og íþróttir. Borgin sameinar nútímalegt borgarumhverfi, sögulega arkitektúr og skapandi stemningu, með fjölmenningarlegu samfélagi og ríkulegu menningarlífi.

29. og 30. jan – Á siglingu
Á siglingu báða dagana og um að gera að njóta þess sem skipið hefur uppá að bjóða.

31. jan. – Milford Sound New Zealand
Milford Sound er stórkostlegur fjörður í suður hluta landsins, þekktur fyrir há fjöll, glitrandi fossar og óspillta náttúru. Mjög fallegt að sigla þarna og um að gera að njóta fegurðarinnar.

Komum kl 09:00 og förum kl 18:00. Dunedin er sögufræg og menningarleg borg á suðausturströndinni. Hún er þekkt fyrir skorska arfleifð, fallega viktorískar byggingar og návígi við óspillta náttúru, þar á meðal strendur og fuglalíf. Dunedin sameinar háskólalíf, listir og sögu í afslöppuðu umhverfi.

2. feb – Lyttelton New Zealand
Komum kl 07:00 og förum kl 17:00. Lyttelton er litríkur sjávarbær rétt við Christchurch á suðurströndinni. Hann er þekktur fyrir höfnina og strandlengjunna og býður upp á fallega náttúru.

Í dag er afslöppun og um að gera að njóta þess sem skipið hefur uppá að bjóða.

4. feb Tauranga New Zealand
Komum kl 07:00 og förum kl 19:00. Tauranga er lifandi strandbær við Bay of Plenty á norðurströnd Nýja-Sjálands. Bærinn er þekktur fyrir fallegar strendur, afslappað strandlíf og ágætar verslanir.

5. feb – 7 feb. Auckland New Zealand –
Komið til Aukland kl 07:00 að morgni, farið upp á hótel þar sem gist er í þrjár nætur. Auckland er stærsta borg Nýja-Sjálands, staðsett á norðurströnd landsins. Hún er þekkt sem “City of Sails” vegna fjölda seglbáta í höfninni og býður upp á fjölbreytt menningarlíf, nútímalegt borgarumhverfi, fallega náttúru og eyjar í nágrenninu. Borgin sameinar stórborgarþægindi með afslöppuðu sjávar- og útivistarlífi.
Hér er tillaga um hvað hægt er að gera í Auckland.
Dagur 1 – Borgin & höfnin
Morgunn
Byrjaðu á Sky Tower – útsýni yfir alla borgina (kaffi þar uppi ef veður er gott).
Ganga niður Queen Street og kíkja aðeins í verslanir.
Hádegi
Hádegisverður í Britomart (mjög gott úrval, ferskt og líflegt svæði).
Síðdegi
Labba um Viaduct Harbour og Wynyard Quarter.
Heimsækja New Zealand Maritime Museum (skemmtilegt og ekki of stórt).
Ef veður leyfir: stutt sigling eða ferjutúr um höfnina.
Kvöld
Kvöldmatur í Viaduct Harbour eða Ponsonby.
Drykkur á þakbar (t.d. SkyBar) eða rólegt kvöld við höfnina.
Dagur 2 – Náttúra & eyjar
Morgunn
Ferja frá miðbænum til Waiheke Island (um 40 mín).
Ganga, strandrúntur eða heimsókn á víngerð (margar bjóða léttan hádegisverð).
Hádegi
Hádegisverður á Waiheke – vín, sjávarréttir og afslappað stemning.
Síðdegi
Til baka til Auckland.
Stutt ganga upp á Mount Eden fyrir fallegt útsýni yfir borgina.
Kvöld
Kvöldmatur í Parnell eða Ponsonby.
Ef orka er eftir: kvöldganga í Auckland Domain eða rólegur kaffibolli.

Flogið með Air New Zealand og Icelandair. Lent í Keflavík þann 9. febrúar. Upplýsingar um flug og flugtíma verða birtar hér fljótlega.
Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.



































