27. janúar- Á siglingu
Brottför 23. janúar, heimkoma 10. febrúar.
Panamaskurðurinn frá Miami. Tvær nætur í Miami, 13 nátta sigling og 2 nætur í Orlando.
Flogið með Icelandair til Miami og gist þar í tvær nætur áður en farið er um borð í Sun. Komið er við í Great Stirrup Cay, Cabo Rojo í Puerto Rico, Oranojestad á Aruba, Willemstad á Curaquoa, Cartagena í Kólombíu, Panama Lake Gatum, Colon í Panama, Puerto Limon í Costa Rica og Miami.
Glæsiskipið Norwegian Sun
Norwegian Sun er 73,309 brúttótonn, 258 metrar á lengd, 38 metra breitt og tekur 1.878 farþega. Áhöfnin er 906 og ganghraði er 20 hnútar. Sun er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þessa. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu. Norwegian Sun var allt uppgert 2021.
Verð á mann miðað við tvo í svalaklefa 999.900 kr. og verð á mann miðað við tvo í innklefa 758.900 kr.
Einstaklingsálag:
Svalaklefi (BA)- 477.900
Innklefi(IA) – 232.900
| INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, fimmtán nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. Innifalið er More At Sea Pakkinn. Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 5 sinnum, innklefi 3 sinnum. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað. |
| EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
Additional information
| Klefi | Gluggaklefi, innklefi – einbýli, svalaklefí – einbýli, Tveggja manna inniklefi, Tveggja manna svalaklefi |
|---|
23. janúar Keflavík til Miami

Flogið til Miami með Icelandair þar sem gist verður í tvær nætur. Brottför frá Keflavík 17:05 lent í Miami kl. 20:55. Gist á Hyatt Hotel.

24. janúar – Miami
Miami er strandborg í Flórída, þekkt fyrir strendur, listalíf og líflega menningu. Borgin sameinar suður-amerísk og karabísk áhrif við nútímalegt borgarlíf, með frægum hverfum eins og South Beach, Art Deco-hverfinu og Little Havana. Miami er þekkt fyrir sól, næturlíf og matarmenningu. Fararstjóri röltir með þá sem það vilja í næsta nágrenni hótelsins.

25. nóvember – Siglingin hefst
Farið frá hótelinu eftir morgunverð og niður á höfn þar sem Sun bíður okkar. Lagt úr höfn kl 16:00. Fundur með fararstjóra, labbitúr um skipið og sameiginlegur kvöldverður.

26. janúar – Great Stirrup Cay
Komið til Great Stirrup Cay kl 07:00 og farið kl 16:00.
Great Stirrup Cay er eyja sem skipafélagið á. Hér er gott að snorkla og slappa síðan af á ströndinni eða skutlast yfir flóann svífandi í zipline.

Á siglingu allan daginn og um að gera að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða. Það er nóg við að vera um borð.

28. janúar – Cabo Rojo
Komið kl. 09:00 og farið kl.15:30
Cabo Rojo er strandbær á suðvesturhluta Púertó Ríkó, þekktur fyrir fallegar strendur, náttúru og afslappaða stemningu. Svæðið er frægt fyrir hvítar sandstrendur og vitann við Los Morrillos með stórbrotnu útsýni yfir Karíbahafið. Cabo Rojo hentar vel fyrir sól, sjó og rólegt strandlíf.

29. janúar – Oranjestad
Komum kl 11:00 og förum á ný kl 19:00. Oranjestad er höfuðborg Aruba, þekkt fyrir litrík hús, verslun og afslappaða karabíska stemningu.

30. janúar Willemstad
Komið kl.07:00 og farð kl.17:00
Willemstad er höfuðborg Curaçao, þekkt fyrir litrík nýlenduhús, sögulegan miðbæ og fallega höfn. Borgin er á heimsminjaskrá UNESCO og einkennist af hollenskum áhrifum, karabískri stemningu og lifandi menningarlífi.

31. janúar- Sigling
Í dag erum við á silglingu og njótum lífsins um borð. Alltaf nóg um að vera, sólbað, alls konar námskeið og margt fleira.

1. febrúar – Cartagena Kólombíu
Komið kl.06:00 og farið kl.14:00
Cartagena er strandborg á Karabíuströnd Kólumbíu, þekkt fyrir sögulegan gamla bæ, litskrúðugar götur og vel varðveittan borgarmúr. Borgin sameinar ríka nýlenduarfleifð, karabíska stemningu og líflega menningu, með ströndum, tónlist og matarmenningu sem einkenna andrúmsloftið.

2. febrúar – Panama skipaskurðurinn-Gatum vatn Panama
Förum upp skipastigann Atlantshafsmegin snemma morguns og upp á Gatún vatnið þar sem við stoppum í smá tíma og förum síðan niður skipastigann sömu megin og við fórum upp kl 15:00. Gaman að fylgjast með því.
2. febrúar Colon
Komið kl.17:00 og farð kl.20:00
Colón er hafnarborg við Karabíuströnd Panama. Stutt stopp og rölt í heljarinnar flotta verslunarmiðstöð sem er á hafnarbakkanum.

3. febrúar Puerto Limon
Komið kl.06:45 og farið kl.13:30. Puerto Limón er hafnarborg á karabísku strönd Kosta Ríka, þekkt fyrir ríka afrísk-karabíska menningu, regnskóga og líflega tónlist. Borgin er aðgangsstaður að þjóðgörðum, ströndum og náttúrulífi svæðisins.
4. og 5. febrúar. Á siglingu
Tveir dagar á sjó og um að gra að njóta sem best.

6. febrúar. Siglingu lýkur
Komið kl.07:00 til Miami og brottför frá skipi kl. 10:00. Ekið til Orlando og komið þangað um kl.14. Gist í Orlando næstu tvær nætur.

7. febrúar Orlando
Orlando er borg í miðri Flórída, þekkt fyrir skemmtigarða, þar á meðal Disney World og Universal Studios. Gistum á Flórída Mall hótelinu og þaðan er stutt í fjölda verslana í verlunarmiðstöðinni inn af hótelinu með um 130 verslunum.
8. febrúrar Heimferð
Farið út á flugvöll um miðjan dag og síðan heim með Icelandair og lent snemma að morgni 9. febrúar í Keflavík.

Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.



























