Jól í Karíbahafi með Escape 21 desember til 2 janúar  2026

Flogið til Orlando með Icelandair 21. desember, gist í tvær nætur fyrir siglinguna á Florida Mall hótelinu og síðan tvær nætur  þar eftir siglinguna. Siglt frá Port Canaveral í Flórída og komið við í Puerto Plata í Dóminíkanska lýðveldinu, St Thomas, Tortola og á Great Stirrup Cay, sem er lítil eyja sem skipafélagið á og loks aftur til Port Canaveral. Gistum tvær nætur á Florida Mall Hotelog komum heim snemma morguns.

Glæsiskipið Norwegian Escape

Norwegian Escape er 164. 998 brúttótonn, 326 metrar á lengd og tekur 4.218  farþega. Áhöfnin er 2.022 og ganghraði er 20 hnútar. Escape er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þessa. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.

Verð á mann í svalaklefa 690.000 kr. og verð á mann í innklefa 610.000 kr.

Verð fyrir einn í svalaklefa 880.000 kr. og einn í innklefa 710.000 kr.

 
INNIFALIÐ: lug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, tíu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
More At Sea Pakkinn. Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.
EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

21. desember – fimmtudagur – Keflavík – Orlandó

Flogið síðdegis með Icelandair til Orlando þar sem lent er klukkan 20:05 að staðartíma. Ekið sem leið liggur á Florida Mall Hotel.

22. desember – Orlando

Frjálsir dagar í Orlando en þar er nóg hægt að gera. Í verslunarmiðstöðinni Florida Mall eru um 270 verslanir auk fjölda veitingastaða. Góður sundlaugargarður er við hótelið auk þess sem stutt er í Premium Outlet þar sem hægt er að gera mjög góð kaup. Ekki má heldur gleyma hinum fjölmörgu skemmtigörðum sem eru í næsta nágrenni við hótelið og einnig eru margir flottir golfvellir á svæðinu.

23. desember – sunnudagur – Siglingin hefst

Farið frá hótelinu um kl 12:00 og ökum til Port Canaveral þar sem við förum um borð í Escape. Lagt úr höfn klukkan 16:00.

24. desember – mánudagur – Á siglingu

Á siglingu allan daginn og um að gera að njóta sín á sóldekkinu og horfa yfir til Kúbu og fleiri eyja sem við siglum framhjá.

25. desember – Puerto Plata

Komum til Dóminíkanska lýðveldisins kl 07:00 og förum á ný kl 16:00. Hreinn og tær sjór og gaman að rölta um miðbæinn og skoða menninguna hjá innfæddum, en hér í Puerto Plata búa um 340.000 manns. Ólíklegt að við fáum skötu þó það sé Þorláksmessa.

26. desember – St Thomas

Komum til bandarísku Jómfrúreyjunnar St Thomas kl 11:00 á Aðfangadag og förum á ný kl 19:00. Falleg eyja, gaman til dæmis að fara í kláfunum upp í fjall og skoða útsýnið þaðan, eða rölta í bænum og fá sér kaffi með heimamönnum.

27. desember  – Tortola

Þá er það bresku Jónfrúreyjan Tortola sem hefur meðal annars verið þekkt skattaskjól í gegnum árin. Komum kl 06:00 og förum á ný kl 13:00. Hér búa aðeins um 24.000 manns. Kíkjum kannski á einhverja banka eða bara á kaffihús. Nóg um að fera um borð á Jóladag, ekki síst fyrir yngstu farþegana.

28. desember – Á siglingu

Njóta lífisins um borð, hvort heldur það er í nuddi, sólbaði, heitu pottunum, á einhverju námskeiði eða inn á bókasafni með góða bók.

29. desember – Great Stirrup Cay 

Komið til Great Stirrup Cay, eyju sem NCL á, kl 10:00 og farið á ný kl 18:00. Farið í land með léttabátum og hér er gott að snorkla og slappa síðan af á ströndinni. Kokkar og þjónar skipsins koma hér í land og skipskortið gildir fyrir mat og drykk.

30. desember  – Siglingu lýkur

Lagst að bryggju í Port Canavera kl 07:00. Ekið til Florida Mall þar sem við gistum í tvær nætur . Þangað er komið upp úr hádegi þannig að dagurinn nýtist vel.


Heimferð

31. desember Orlando

Fráls dagur í Orlando en þar er nóg hægt að gera. Í verslunarmiðstöðinni Florida Mall eru um 270 verslanir auk fjölda veitingastaða. Góður sundlaugargarður er við hótelið auk þess sem stutt er í Premium Outlet þar sem hægt er að gera mjög góð kaup. Ekki má heldur gleyma hinum fjölmörgu skemmtigörðum sem eru í næsta nágrenni við hótelið og einnig eru margir flottir golfvellir á svæðinu.

1. janúar — Heimferð

Farið frá hótelinu eftir hádegi og flogið heim klukkan 17:45. Lent í Keflavík klukkan 06:05 að morgni 2. janúar.

Fararstjóri:

Skúli Unnar Sveinsson - Fararstjóri

Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.