Gríska Eyjahafið frá Aþenu til Feneyja 27. ágúst – 8 sept 2026.
Flogið til Aþenu með Icelandair og KLM. Gistum í þrjár nætur og förum síðan í 7 nátta siglingu með NCL Pearl frá Aþenu (Pireus) þar sem komið er við í Santorini í Grikklandi, Olympia Katakolon í Grikklandi, Corfu í Grikklandi, Kotor í Svartfjallalandi, Split í Króatíu, Koper í Slóveníu og svo endað í Ravena (Feneyjum) þar sem siglingin endar. Ekið til Feneyja og þar gistum við í tvær nætur áður en við fljúgum með SAS og Icelandair heim og lendum í Keflavík.
Glæsiskipið Norwegian Pearl
Norwegian Pearl er glæsilegt skemmtiferðaskip.
- Þyngd: 93,530 brúttótonn
- Lengd: 294 metrar
- Breidd: Næstum 38 metrar
- Farþegar: Getur borið 2,344 farþega
- Áhöfn: 1,072 manns
- Byggt: 2006
- Endurbætur: Fór í mikla yfirhalningu árið 2021
Verð:
Verð á þessa ferð kemur í lok september. Hægt er að skrá sig í ferðina án skuldbindingar og staðfesta svo endanlega þegar verð liggur fyrir.
Einnig er fyrirvari um að flug og hótelgisting fáist staðfest á þessum dagsetningum.
INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. More At Sea. Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað. |
EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
27. Ágúst – Fimmtudagur- Keflavík – Aþena
Flogið um miðjan dag með Icelandair og KLM til Aþenu. Brottför frá Keflavík kl. og lendum í Aþenu kl. Ekið til hótels. Gistum þar í þrjár nætur.
28. – 29. Ágúst – Aþena
Notum dagana til að skoða Aþenu enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Einnig er gaman að kíkja á Acrapolis og fleiri staði í Aþenu. Höfuðborg Grikklands er full af sögu og fallegum minnisvörðum um þá sögu. Mikið og margt að skoða hér, Akrapolis, Plaka, Ólympíuleikvangurinn og margt fleira.
30. Ágúst- Sunnudagur- Siglingin hefst
Brottför frá hóteli um kl.11:00. Pearl leggur úr höfn klukkan 17:00.
31. Ágúst – Mánudagur – Santorini
Vörpum ankerum úti fyrir eynni kl 09:00 og dveljum þar til kl 19:00. Gaman að vera uppi á dekki þegar við nálgumst eyna. Mjög gaman að skoða sig um á Santorini en má búast við að það taki tíma að koma sér upp frá höfninni. Oft er bið við stigann en það er líka hægt að bóka skoðunarferð á vegum skipsins og þá er biðtíminn miklu styttri.
1. September- Þriðjudagur – Olympia Katakolon
Komið til Olympia 09:00 og farið kl. 19:00. Lítill bær, aðeins um 500 íbúar, og tilvalið að fara upp í Olympíu hina fornu og skoða meðal annars staðinn þar sem ólympíueldurinn er kveiktur í aðdraganda Ólympíuleikanna. Í Katakolon er líka pínulítið safn sem vert er að skoða.
2. September – Miðvikudagur – Corfu í Grikklandi
Þá erum við komin til eyjunnar Corfu. Lagt að bryggju kl 07:00 og farið á ný kl 17:00. Fallegur bær og gaman að fara upp í gamla kastalann sem er þar.
3. September- Fimmtudagur- Kotor
Vörpum ankerum kl 07:30 og farið aftur kl 18:00. Falleg sigling inn að þessum bæ. Farið í land með léttabátum. Skemmtilegur lítill bær sem gaman er að rölta um.
4. September – Föstudagur -Split
Vörpum ankerum kl 07:00 og farið aftur kl 17:00. Falleg sigling inn að þessum bæ. Split er sögufræg borg með marga áhugaverða staði, skemmtileg veitingahús og krár. Borgin er þekkt fyrir frábæra sjávarrétti og skemmtilegar krár. Einnig er ströndin afar falleg.
5. September – Laugardagur – Koper
Komið til Koper kl.08:00 og farið kl.19:00. Koper er fimmta stærsta borg Slóveníu. Staðsett í Istran héraðinu i suðvestur hluta landsins. Mjög skemmtileg borg og margt að skoða þar.
6. September – Sunnudagur – Feneyar (Ravena)
Komið til Ravena kl.06:00. Ekið til Mestre kl. 09:00 og á hótelið okkar. Við gistum í Mestre (Feneyjum) í tvær nætur. Farið verður í skoðunarferð til Feneyja.
7. September – Mánudagur – Feneyjar (Mestre)
Notum dagana til að skoða Feneyjar enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Einnig er gaman að kíkja á Mestre, bæinn sem við gistum í.
8. September – Feneyjar – Keflavík
Flogið heim með tengiflugi
Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.