Róm og Instanbul  24. maí  – 5. júní 2026.

Flogið til Rómar með Icelandair. Gistum í þrjár nætur fyrir siglinguna og förum síðan í 9 nátta siglingu með NCL Viva einu nýjasta skipi NCL sem er afar glæsilegt, þar sem komið er við í Salerno, Catania á Ítalíu, Valetta á Möltu, Aþenu í Grikklandi,  Santorini eyjunni frægu, Kusadasi í Tyrklandi og Instanbul í Tyrklandi þar sem er gist 2 nætur um borð í Viva. Þar förum við frá borði  og við fljúgum heim með Icelandair.

Glæsiskipið Norwegian Viva

Norwegian Viva er 155,873 brúttótonn, 294 metrar á lengd og tekur 3.195 farþega. Áhöfnin er 1.506 og ganghraði er 20 hnútar. Viva er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.

Verð í ferðina kemur í júní 

Hægt er að skrá sig án skuldbindingar í ferðina og síðan verður verð sent til viðkomandi í júní og þá er hægt að staðfesta bókunina.

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, níu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
More At Sea Pakkinn. Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.
EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

24. Maí – Sunnudagur – Keflavík – Róm

Flogið með Icelandair til Rómar. Ekið sem leið liggur upp á Hótel Radison SAS Blue þar sem við gistum í þrjár nætur.

25.  – 27. Maí- Mánudagur – Þriðjudagur Róm

Notum þessa tvo daga til að gera eitthvað skemmtilegt, til dæmis að skoða Róm enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Fyrsta daginn fer fararstjóri í sex tíma gönguferð um Róm með þá sem það vilja.

27. Maí – Miðvikudagur – Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um kl. 10:30 og ekið til Civitavecchia. Viva leggur úr höfn klukkan 17:00.

Epic Aqua

28. Maí – Fimmtudagur – Amalfi Coast Salerno

Komið til Salerno kl. 07:00 og farið kl. 18:00.

Salerno er forn borg við Salerno flóa. Landslagið umhverfis borgina er afar fallegt og stutt frá er hin fræga Amalfi strönd. Í Salerno var fyrsti læknaskóli Evrópu og borgin býr yfir mikilli sögu. Borgin státar af fjölda veitingahúsa, mannlífi og mörgu fleiru.

houses on mountain near body of water

29. Maí – Föstudagur – Catania

Komið til Catania kl. 07:00 og farið kl. 18:00.

Catania er forn hafnarborg undir rótum eldfjallsins Etna sem blasir við ofan við borgina. Falleg borg með götumörkuðum, kaffihúsum, kirkjum og fallegum byggingum.

a city on an island

30. Maí – Laugardagur – Valetta á Möltu

Komið til Valetta kl. 07:00 og farið kl. 18:00.

Þá erum við komin til Möltu. Lagt er að bryggju undir hamrinum þar sem miðborg Valettu er. Stutt er að rölta í lyftuna sem fer með okkur upp í miðbæinn sem er afar skemmitlegur og gaman að skoða. Skemmtileg eyja með mjög fallegu hafnarsvæði og skemmtilegum miðbæ.

31. Maí – Sunnudagur – Sigling

Á siglingu allan daginn og nóg að gera um borð, skoða skipið, liggja í sólbaði eða bara gera eitthvað annað skemmtilegt.

 

1. júní – Mánudagur – Pireus Aþena

Komið til Pireus hafnarborgar Aþenu kl. 05:30 og farið kl. 18:00.

Höfuðborg Grikklands er full af sögu og fallegum minnisvörðum um þá sögu. Mikið og margt að skoða hér, Akrapolis, Plaka, Ólympíuleikvangurinn og margt fleira.

2. júní – Þriðjudagur- Santorini

Komið til Santorini kl. 07:00 og farið kl. 22:00.

Farið með léttbátum í land. Oft er biðröð við stigann en ef menn vilja sleppa við biðraðir þá er hægt að bóka skoðunarferð um eynna hjá skipinu. Úr fjarlægð sýnist eyjan vera með jökul á toppnum en þegar nær kemur sést að þetta eru húsin í Fira. Skoðum Fira eða kíkjum í einhvern annan bæ á eynni.

3. júní – Miðvikudagur- Kusadasi Tyrklandi

Komið til Kuradasi kl. 07:00 og farið kl. 14:00. Kuradasi var Grísk borg til forna fræg fyrir Hof Artemis sem er eitt af sjö undrum hins forna heims. Hofið var byggt og síðan eyðilagt og byggt aftur. í Kuradasi er mikið af frægum fornminjum og sögu

Beautiful rainbow in nature

4. júní – Fimmtudagur – Instanbul

Komið til Instanbul kl. 11:00. Við gistum í skipinu næstu nótt í Instanbul. Hægt er bóka fjölda skoðunarferða í Instanbul á vegum NCL.

Instanbul er höfuðborg Tyrklands og höfuðborg Ottomans keisaraveldisins til forna. Þar eru moskur og margar frægar byggingar, götumarkaðir og verslanir en túlipanar eru einkenni Instanbul.

an aerial view of a city and a bridge

5. júní – Föstudagur – Instanbul siglingu lýkur og heimferð

Ekið til flugvallar og flogið heim með Icelandair

Fararstjóri:

Skúli Unnar Sveinsson - FararstjóriFararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.

Epic Burn the Floor
Epic Balcony State room
Epic Climbing Wall Couple
Epic O Sheehans
Epic Le Bistro
Epic Moderno
Epic Courtyard
Epic Fitness
Epic Atrium Café
Epic Inside State room
Epic Aqua Park Family Splash
Epic Aqua
0Epic The Manhattan Room
Epic Ice Bar
Epic Deluxe Owners Suite Living Room
Epic Ultra Lounge
Norwegian - Epic
Epic spice