Instanbul  til Rómar 4  – 18. september 2026.

Flogið til Istanbul með LOT Polish Airlines, sem er þjóðarflugfélag Póllands og eitt elsta flugfélag heims. Það hefur höfuðstöðvar í Varsjá og þjónar sem mikilvæg miðstöð sem tengir Mið- og Austur-Evrópu við áfangastaði um allan heim. Flugfélagið er meðlimur í Star Alliance og hefur gott orð á sér fyrir að vera með nútímalegan flugflota.

Gistum í þrjár nætur fyrir siglinguna og förum síðan í 9 nátta siglingu með NCL Viva einu nýjasta skipi NCL sem er afar glæsilegt, þar sem komið er við í Kusadasi í Tyrklandi, Santorini, Mykonos, Piereus/Aþenu, Katakolon/Katakolon í Grikklandi, Valetta á Möltu, Catania á Ítalíu, Salerno á Ítalíu og endað í Civitavecchia, hafnarborg Rómar á Ítalíu. Gist í tvær nætur í Róm og við fljúgum heim með Icelandair.

Glæsiskipið Norwegian Viva

Norwegian Viva er 155,873 brúttótonn, 294 metrar á lengd og tekur 3.195 farþega. Áhöfnin er 1.506 og ganghraði er 20 hnútar. Viva er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.

Verð á mann miðað við tvo í svalaklefa kr.795.000

Verð á mann miðað við tvo í innklefa kr.680.000

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, níu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
More At Sea Pakkinn. Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.
EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

LOT'S Full Content Now Available on APG Platform - APG Air Promotion Group

4. September – Föstudagur – Keflavík – Instanbul

Flogið til Istanbul. Brottför með LOT frá Keflavík kl.00:45. Lent í Varsjá kl.06:45. Flogið áfram með LOT kl. 09:15 og lent í Istanbul kl.13:05. Ekið sem leið liggur til hótelsins þar sem við gistum í þrjár nætur.

LOT flugfélagið eða LOT Polish Airlines, er þjóðarflugfélag Póllands og eitt elsta flugfélag heims. Það hefur höfuðstöðvar í Varsjá og þjónar sem mikilvæg miðstöð sem tengir Mið- og Austur-Evrópu við áfangastaði um allan heim. Flugfélagið er meðlimur í Star Alliance og hefur gott orð á sér fyrir að vera með nútímalegan flugflota.

an aerial view of a city and a bridge

5.  – 6. September – Laugardagur – Sunnudagur  – Istanbul

Instanbul er höfuðborg Tyrklands og höfuðborg Ottomans keisaraveldisins til forna. Þar eru moskur og margar frægar byggingar, götumarkaðir og verslanir en túlipanar eru einkenni Instanbul.

 

7. September – Mánudagur – Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um kl. 10:30 og farið niður á höfn þar sem Viva bíður okkar. Siglt úr höfn klukkan 17:00.

8.  September  – Þriðjudagur – Kusadasi Tyrklandi

Komið til Kusadasi kl. 07:00 og farið kl. 14:00. Kusadasi var grísk borg til forna, fræg fyrir Hof Artemis sem er eitt af sjö undrum hins forna heims. Hofið var byggt og síðan eyðilagt og byggt aftur. Í Kusadasi er mikið af frægum fornminjum og sögu.

Beautiful rainbow in nature

9.  September  – Miðvikudagur-  Santorini

Komið til Santorini kl. 07:00 og farið kl. 22:00.

Farið með léttbátum í land.  Úr fjarlægð sýnist eyjan vera með jökul á toppnum en þegar nær kemur sést að þetta eru húsin í Fira. Förum upp í Fira og röltum aðeins þar um. Hægt að taka skoðunarferðir með skipafélaginu og losna þannig við raðir sem myndast oft við kláfinn frá höfninni upp í Fira.

10. September  – Fimmtudagur – Mykonos

Komið kl.07:00 og farið kl.19:00

Komið í skemmtilegan lítinn bæ með þröngum götum og skemmtilegu mannlífi. Misjafnt hvort lagt er að bryggju eða farið í land með léttabátum.

 

11. September – Föstudagur – Pireus/Aþena

Komum til Pireus, hafnarborgar Aþenun kl 5:30 og förum á ný kl 16:00. Flestir fara inn til Aþenu en sumir kjósa að rölta um hafnarborgina og skoða meðal annars smábátahöfnina. Í Aþenu er margt að sjá, en ef fólk hyggst fara upp á Akrópólis þá er betra að panta það fyrirfram.

 

12. September  – Laugardagur – Katakolon/Olympia í Grikklandi

Komið til Katakolon kl 7:00 og farið á ný kl 16:00. Gaman að fara upp í Olympíu hina fornu og skoða leikvanginn þar sem Ólympíuleikarnir voru haldnir til forna. Kíkja líka á lítið og skemmtilegt safn í Katakolon og rölta eina af þremur götum bæjarins.

Katakolon í Grikklandi

13. September – Sunnudagur- Valetta á Möltu

Komið til Valetta kl. 11:00 og farið kl. 21:00.

Þá erum við komin til Möltu. Lagt er að bryggju undir hamrinum þar sem miðborg Valettu er. Stutt er að rölta í lyftuna sem fer með okkur upp í miðbæinn sem er afar skemmitlegur og gaman að skoða. Skemmtileg og falleg eyja með mjög fallegu hafnarsvæði og skemmtilegum miðbæ.

14. September  – Mánudagur – Catania á Ítalíu

Komið til Catania á Sikiley kl. 07:00 og farið kl. 17:00.

Catania er forn hafnarborg við rætur eldfjallsins Etnu á Sikiley og blasir fjallið við ofan við borgina. Gaman að keyra til bæjarins Taramina sem er mjög fallegur bær þar sem mörg skáld hafa alið manninn við ritstörf.

a city on an island

15. September – Þriðjudagur – Salerno á Ítalíu

Komið til Salerno kl. 07:00 og farið kl. 18:00.

Landslagið umhverfis borgina er afar fallegt og stutt frá er hin fræga Amalfi strönd. Í Salerno var fyrsti læknaskóli Evrópu og borgin býr yfir mikilli sögu. Borgin státar af fjölda veitingahúsa, mannlífi og mörgu fleiru. Stutt er að fara til Pompeii og skoða rústirnar þar.

houses on mountain near body of water

16. September  – Miðvikudagur Civitavecchia/Róm – Siglingu lýkur 

Komum til Civitavecchia kl 6:00, förum frá borði um kl 9:00 og keyrum til Rómar þar sem við gistum í tvær nætur. Notum þessa daga til að gera eitthvað skemmtilegt, til dæmis að skoða Róm enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Fararstjórinn fer með þá sem það vilja í um 6 tíma rölt um borgina.

17. September – Fimmtudagur – Róm

Frjáls dagur í höfuðborg Ítalíu. Mjög margt sem hægt er að skoða í þessari merku borg.

18. September  – Föstudagur – Heimferð

Ekið til flugvallar og flogið heim með Icelandair. Brottför kl.15:45 og lent í Keflavík kl.18:35.

Fararstjóri:

Fararstjóri í ferðinni er Sigrún Jónsdóttir. Sigrún hefur mikla reynslu sem fararstjóri og leiðsögumaður, bæði hér heima og eins erlendis. Hún lauk námi vð Leiðsögumannaskólann 1987 og lærði mannfræði við Háskóla Íslands og hefur starfað við leiðsögn meira og minna frá árinu 1986.

Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.

Epic Burn the Floor
Epic Balcony State room
Epic Climbing Wall Couple
Epic O Sheehans
Epic Le Bistro
Epic Moderno
Epic Courtyard
Epic Fitness
Epic Atrium Café
Epic Inside State room
Epic Aqua Park Family Splash
Epic Aqua
0Epic The Manhattan Room
Epic Ice Bar
Epic Deluxe Owners Suite Living Room
Epic Ultra Lounge
Norwegian - Epic
Epic spice