Karíbahafið frá Miami með Aqua

Flogið til Orlando með Icelandair 6. nóvember, gist í þrjár nætur fyrir siglinguna á Florida Mall hótelinu og síðan eina nótt þar eftir siglinguna. Siglt frá Miami í Flórída og komið við í Puerto Plata í Dóminíkanska lýðveldinu, St Thomas, Tortola og á Great Stirrup Cay, sem er lítil eyja sem skipafélagið á og loks aftur til Miami. Gistum eina nótt og komum heim snemma morguns 18. nóvember.

Glæsiskipið Norwegian Aqua

Norwegian Aqua er nýjasta skip NCL,  hleipt af stokkunum á þessu ári, 142,500 brúttótonn, 294 metrar á lengd og tekur 3.195  farþega. Áhöfnin er 1.506 og ganghraði er 20 hnútar. Aqua er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þessa. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.

Verð á mann í svalaklefa 640.000 kr. og verð á mann í innklefa 585.000 kr.

Verð fyrir einn í svalaklefa 800.000 kr og einn í innklefa 700.000

 
INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”.Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.Matarpakkinn: Út að borða á sérstöku veitingastöðunum: tvisvar sinnum fyrir gestir í svalaklefi og einu sinni fyrir gestir í innklefar og stúdíóklefar.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir.Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.
EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

6. nóvember – fimmtudagur – Keflavík – Orlandó

Flogið síðdegis með Icelandair til Orlando þar sem lent er klukkan 20:05 að staðartíma. Ekið sem leið liggur á Florida Mall Hotel.

7. – 8. nóvember – föstudagur, laugardagur – Orlandó

Frjálsir dagar í Orlando en þar er nóg hægt að gera. Í verslunarmiðstöðinni Florida Mall eru um 270 verslanir auk fjölda veitingastaða. Góður sundlaugargarður er við hótelið auk þess sem stutt er í Premium Outlet þar sem hægt er að gera mjög góð kaup. Ekki má heldur gleyma hinum fjölmörgu skemmtigörðum sem eru í næsta nágrenni við hótelið og einnig eru margir flottir golfvellir á svæðinu.

9. nóvember – sunnudagur – Siglingin hefst

Farið frá hótelinu um kl 09:00 og ökum til Miami þar sem við förum um borð í Aqua. Lagt úr höfn klukkan 17:30.

10. nóvember – mánudagur – Á siglingu

Á siglingu allan daginn og um að gera að njóta sín á sóldekkinu og horfa yfir til Kúbu og fleiri eyja sem við siglum framhjá.

11. nóvember – þriðjudagur – Puerto Plata

Komum til Dóminíkanska lýðveldisins kl 07:00 og förum á ný kl 16:00. Hreinn og tær sjór og gaman að rölta um miðbæinn og skoða menninguna hjá innfæddum, en hér í Puerto Plata búa um 340.000 manns.

12. nóvember – miðvikudagur – St Thomas

Komum til bandarísku Jómfrúreyjunnar St Thomas kl 11:00 og förum á ný kl 19:00. Falleg eyja, gaman til dæmis að fara í kláfunum upp í fjall og skoða útsýnið þaðan, eða rölta í bænum og fá sér kaffi með heimamönnum.

13. nóvember – fimmtudagur – Tortola

Þá er það bresku Jónfrúreyjan Tortola sem hefur meðal annars verið þekkt skattaskjól í gegnum árin. Komum kl 06:00 og förum á ný kl 13:00. Hér búa aðeins um 24.000 manns. Kíkjum kannski á einhverja banka eða bara á kaffihús.

Epic Aqua Park Family Splash

14. nóvember – föstudagur- Á siglingu

Njóta lífisins um borð, hvort heldur það er í nuddi, sólbaði, heitu pottunum, á einhverju námskeiði eða inn á bókasafni með góða bók.

15. nóvember – laugardagur – Great Stirrup Cay

Komið til Great Stirrup Cay, eyju sem NCL á, kl 10:00 og farið á ný kl 18:00. Farið í land með léttabátum og hér er gott að snorkla og slappa síðan af á ströndinni. Kokkar og þjónar skipsins koma hér í land og skipskortið gildir fyrir mat og drykk.

16. nóvember – sunnudagur – Siglingu lýkur

Lagst að bryggju í Miami kl 07:00. Ekið til Orlando þar sem gist verður eina nótt á Florida Mall hótelinu. Þangað er komið upp úr hádegi þannig að dagurinn nýtist vel.

Heimferð

17. nóvember – mánudagur – Heimferð

Farið frá hótelinu eftir hádegi og flogið heim klukkan 17:45. Lent í Keflavík klukkan 06:05 að morgni 28. nóvember.

Fararstjóri:

Skúli Unnar Sveinsson - Fararstjóri

Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.