Róm og Gríska eyjahafið 29 sept. – 12. okt 2025.

Flogið til Rómar með Icelandair. Gistum í tvær nætur í Róm og förum síðan í 10 nátta siglingu með NCL Epic þar sem komið er við á Santorini, Aþenu, Mykonos og Corfu í Grikklandi, Valetta á Möltu, Messina á Sikiley, Napolí og Liveorno á Ítalíu áður en við komum til Civitavecchia, hafnarborgar Rómar. Þar förum við frá borði og beint út á flugvöll og fljúgum heim með Icelandair.

Glæsiskipið Norwegian Epic

Norwegian Epic er 155,873 brúttótonn, 329 metrar á lengd og tekur 4.100 farþega. Áhöfnin er 1.753 og ganghraði er 20 hnútar. Epic er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þess. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.

Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa er kr. 775.000 og kr. 615.000 í innklefa

Fyrir einn í svalaklefa  kr. 1.050.000  og einn í innklefa kr. 780.000 

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, tíu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
More At SeaDrykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskumMatarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.

Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa.

Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað.

ATH: Fyrir þá sem bókuðu fyrir 1. Október 2024 þá uppfærist aðeins drykkjarpakkinn en út að borða pakkinn er óbreyttur eins og hann var.

EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. VSK á mat og drykk í sumum löndum.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

29. sept  Keflavík – Róm

Flogið með Icelandair til Rómar. Brottför kl.07:50 og lent í Róm kl.14:25 Ekið sem leið liggur upp á hótelið þar sem við gistum í tvær nætur.

Róm Colosseum

 30. sept. Róm

Notum þennan dag til að skoða Róm, enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Annan daginn fer fararstjóri í sex tíma gönguferð um Róm með þá sem það vilja.

Epic Aqua

1. okt. Siglingin hefst

Brottför frá hóteli um kl.11:30 og ekið til Civitavecchia. Epic leggur úr höfn klukkan 17:00.

Norwegian - Epic

2. okt. Á siglingu

Á siglingu allan daginn og nóg að gera um borð, skoða skipið, liggja í sólbaði eða bara gera eitthvað annað skemmtilegt.

3. okt. Santorini

Komið til grísku eyjarinnar Santorini kl 14:00 og leggjum í hann á ný kl 22:00. Skoðum Fira eða kíkjum í einhvern annan bæ á eynni.

4. okt. Aþena

Leggjum að bryggju í Pireus, hafnarborg Aþenu, kl 07:00 og leggjum í hann á ný kl 18.00. Nóg að skoða hér meðal annars Akropolis og  Plaka.

5. okt. Mykonos

Komum til Mykonos kl 07:00 og farið á ný kl 14:00. Skemmtilegur lítill bær með þröngum götum og mjög gaman að ganga þar um.

Corfu í Grikklandi

6. okt. Corfu

Komið til eyjarinnar kl 12:00 og farið á ný kl 19:00. Gaman að rölta hér um, fara upp í gamla kastalann og kíkja yfir svæðið.

7. okt. Valletta

Þá erum við komin til enn einnar eyjarinnar og að þessu sinni Möltu. Leggjum að bryggju kl 13:30 og förum á ný kl 22:00. Skemmtileg eyja með mjög fallegu hafnarsvæði og skemmtilegum miðbæ.

8. okt. Messina

Komum til Sikileyjar kl 08:00 og förum á ný kl 18:00 og siglum þá um Messinasundið.

9. okt. Napolí

Komum hér kl 06:30 og förum á ný kl 16:15. Fyrir þá sem ekki hafa komið til Pompeii þá er það mjög áhugavert. Ítalir segja að Margareta pizzan hafi fyrst verð gerð hér og um að gera að smakka.

10. okt. Livorno

Komið kl. 09:00 og farið þaðan kl. 20:30. Flórens, Pisa (skakki turninn) og Cinque Terra eru meðal þess sem áhugavert er að skoða hér.

11. okt. Siglingu lýkur

Komum til Civitavecchia kl.06:15. Ekið frá skipi til hótels og gist í eina nótt.

12. okt. Ekið frá hóteli til flugvallar og flogið heim með Icealndair. Brottför kl.15:55 og lent í Keflavík kl.18:45

Fararstjóri í ferðinni er

Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir starfaði lengst af sem sérkennari á ýmsum skólastigum en hefur unnið í ferðageiranum síðan 2011. Hún á að baki jógakennaranám og leiðsögunám og hefur starfað sem leiðsögumaður innanlands sem utan og rekur einnig ferðaskrifstofuna Eilífðarsól sem sérhæfir s

ig í jógaferðum.

Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.

Sjá ummæli farþega hér.

Epic Burn the Floor
Epic Balcony State room
Epic Climbing Wall Couple
Epic O Sheehans
Epic Le Bistro
Epic Moderno
Epic Courtyard
Epic Fitness
Epic Atrium Café
Epic Inside State room
Epic Aqua Park Family Splash
Epic Aqua
0Epic The Manhattan Room
Epic Ice Bar
Epic Deluxe Owners Suite Living Room
Epic Ultra Lounge
Norwegian - Epic
Ferð - Epic - Cannes
Epic spice