Brottför 8. september – Heimkoma 20. september.

Flogið til Barcelona með Icelandair 8. september og gist þar í eina nótt áður en 9 nátta siglingin hefst. Komið er við í Cannes í Frakklandi, Livorno, Róm og Napolí á Ítalíu, Messina á Sikiley, Valletta á Möltu, Cagliari á Sardiníu og Mallorka  áður en siglingunni lýkur í Barcelona, gist þar eina nótt og flogið heim á laugardeginum, lent í Keflavík um kl 14:40.

Glæsiskipið Norwegian Breakaway

Norwegian Breakaway var tekið í gegn 2020, en það var smíðað árið 2013. Það er tæplega 147.000 brúttótonn, 326 m á lengd og 52 metra breitt. Farþegar geta verið 3.903 og áhöfnin telur 1.657 og siglingarhraði er 23 hnútar. Um borð eru um fjöldi veitingastaða, kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, heilsulind og leikhús sem tekur um 800 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa 640.000 og í innklefa 565.000 kr.

Einn í svalaklefa 830.000 og í innklefa 700.000.

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, tíu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”.Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.Matarpakkinn: Út að borða á sérstöku veitingastöðunum: Tvisvar sinnum fyrir gestir í svalaklefi og einu sinni fyrir gestir í innklefar og stúdíóklefar.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir. Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.
EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

8. september – mánudagur – Keflavík – Barcelona

Flogið með Icelandair kl.08:25 til Barcelona og lent þar um kl 14:40. Ekið upp á hótel þar sem gist verður í eina nótt.

9. september – þriðjudagur – Sigling hefst

Leggjum af stað frá hótelinu kl. 12:00 og ökum niður á bryggju þar sem við förum um borð í Breakaway. Brottför er kl. 17:00.

10. september – miðvikudagur – Cannes

Komum til Cannes í Frakklandi kl 08:30, förum í land með léttabátum og léttum síðan ankerum kl 18:00

11. og 12. september – fimmtudagur og föstudagur – Livorno

Komið til Livorna kl. 06:30 og lagt úr höfn á ný kl. 19:00 daginn eftir. Hér er tilvalið að skjótast til borgarinnar Flórens, sem er gríðarlega falleg borg og virkilega gaman að skoða miðbæinn þar. Ekki er heldur óvitlaust í leiðinni að renna við í Pisa og kíkja á skakka turninn. Cinque Terre er einnig einstaklega skemmtilegur staður.

13. september – laugardagur – Civitavecchia / Róm

Lagt við bryggju í Civitavecchia kl. 06:30 og farið af stað á ný kl. 19:00. Allar leiðir liggja til Rómar og þar er mikið og margt að skoða. Athugið þó að Róm var ekki byggð á einum degi og ekki er hægt að skoða hana alla á einum degi. Páfagarður, Colloseum, Roman Forum, Vatikanið og mörg falleg torg víða um borgina er meðal þess sem hægt er að kíkja á.

14. september – sunnudagur – Napolí

Komið til Napolí kl. 06:30 og lagt úr höfn kl. 19:00. Hér er margt hægt að gera og ef fólk hefur ekki komið til Pompei og skoðað rústirnar þar þá er það mjög áhugavert. Hægt er að skjótast með báti yfir til Kaprí, sem er lítil og falleg eyja. Einnig er mjög gaman að fara til Sorrento, en leiðin þangað er mjög brött og falleg.

15. september – mánudagur -Messina

Komið til Messina á Sikiley kl 06:00 og farið á ný kl 14:00. Hér er hægt að rölta um bæinn, fara og skoða Etnu eða hvað eina sem fólk vill.

16. september – þriðjudagur – Valletta á Möltu

Komið til Messina á Sikiley kl 07:00 og farið á ný kl 18:00. Skemmtilegur og fallegur bær sem gaman er að rölta um og skoða.

17. september – miðvikudagur – Cagliari á Sardiníu

Lagt við bryggju á Sardiníu kl 09:00 og farið á ný kl 16:00. Cagliari er höfuðborg eyjarinnar og stendur á suðurodda hennar. Á eynni búa um 160.000 manns og borgin sjálf er þekkt fyrir skemmtilegan gamlan bæ og mikð fallegum byggingum.

18. september – fimmtudagur – Palma á Mallorka

Komið er til Palma á Mallorka kl. 12:00 og farið þaðan kl. 20:00. Margt skemmtilegt að gera hér, fara á stönd, í flottar skoðunarferðir eða bara rölta upp í bæ og kíkja aðeins í búðir.

19. september – föstudagur – Siglingu lýkur

Komið til Barcelona snemma morguns. Farið frá borði um kl 08:00 og haldið upp á hótelið þar sem við gistum í eina nótt. Tilvalið að nota daginn til að skoða það sem menn komust ekki yfir fyrir siglinguna.

20. september – laugardagur – Heimferð

Dagurinn tekinn snemma, farið út á völl og fljúgum heim með Icelandair, lendum í Keflavík um klukkan 15:45 og lent kl.18:20 í Keflavík.

Fararstjóri:

Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.