Brottför 27. nóvember, heimkoma 13. desember.
Panamaskurðurinn frá Miami. Tvær nætur í Orlando, 12 nátta sigling og 2 nætur í Orlando.
Flogið með Icelandair til Orlando og gist þar í tvær nætur áður en farið er um borð í Sun. Komið er við í Great Stirrup Cay, Cartagena í Kólombiu, Panama Gatum Lake Panama, Colon í Panama, Puerto Limon í Costa Rica, Falmouth á Jamakia, , George Town á Caman eyjum, og endað í Miami.
Glæsiskipið Norwegian Sun
Norwegian Sun er 73,309 brúttótonn, 258 metrar á lengd, 38 metra breitt og tekur 1.878 farþega. Áhöfnin er 906 og ganghraði er 20 hnútar. Suner glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þessa. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu. Norwegian Sun var allt uppgert 2021.
Verð á mann miðað við tvo í svalaklefa 880.000 kr. og verð á mann miðað við tvo í innklefa 685.000 kr.
INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, fimmtán nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”.More At Sea: Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða.WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa til að nota í skoðunarferð per höfn |
EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
Additional information
Klefi | Gluggaklefi, innklefi – einbýli, svalaklefí – einbýli, Tveggja manna inniklefi, Tveggja manna svalaklefi |
---|
27. nóvember Keflavík til Orlando
Flogið til Orlando með Icelandair þar sem gist verður í tvær nætur. Brottför frá Keflavík 17:05 lent í Orlando kl. 20:55. Gist á Florida Mall Hotel.
28. nóvember – Orlando
Frjáls dagur í Orlando, golf, sólbað, skemmtigarðar eða verslanir, bara það sem fólk vill. Hin ótrúlega menning Orlanod gerir það að verkum að þangað er eftirsóknarvert að koma.
29. nóvember – Á siglingu
Farið frá hótelinu eftir morgunverð til Miami og niður á höfn þar sem Sun bíður okkar. Lagt úr höfn kl 16:00
Verðum á siglingu allan daginn og um að gera að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða
30. nóvember – Great Stirrup Kay
Komið til Great Stirrup Kay kl 07:00 og farið kl 17:00.
Komið til Great Stirrup Cay, eyju sem NCL á, kl 10:00 og farið á ný kl 18:00. Farið í land með léttabátum og hér er gott að snorkla og slappa síðan af á ströndinni. Kokkar og þjónar skipsins koma hér í land og skipskortið gildir fyrir mat og drykk.
1. desember- Sigling
Þennan dag erum við á siglingu og njótum þess að líða yfir hafið og slaka á. Það er nóg við að vera um borð.
2. desember – Sigling Cartagena Kólombía
Komið kl. 05:00 og farið kl.15:00
Gamli bærinn í Cartagena endurspeglar órólega sögu landvinninga og sjóræningja. Þar má líka finna mikið af verslunum og veitingastöðum.
3. desember –Panama Canal Gatum Lake Panama
Komið til Panama kl.05:00 og farið kl.15:00
4. desember – Colon
Komið til Colon kl.05:00 og farið kl.20:00
5. desember – Puerto Limon Costa Rica
Komið kl.07:00 og farð kl.16:00
Puerto Limón er þekkt fyrir fjölmenningarlegt samfélag sitt og hátíðlega árlega karnavalshátíð. Þjóðgarðar og vistvæn svæði eru þarna um allt og margir sem koma hingað til að njóta í vistvænu umhverfi.
6. desember – Sigling
Í dag erum við á silglingu og njótum lífsins um borð. Alltaf nóg um að vera um borð, sólbað, heilsulyndin, alls konar námskeið og margt fleira.
7. desember – Falmouth á Jamaika
Komið kl.07:00 og farið kl.17:00
Falmouth (Jamaican Patois: Er sögufræg borg við Montego flóa og er þekkt fyrir að vera best varðveitta Georgina borg í Karíbahafi.
8. desember – Georg Town Cayman Islands
Er stærsta borgin á Cayman eyjum og mjög skemmtileg að heimsækja.
Komið til Georg Town kl.07:00 og farið kl.17:00
9. desember Sigling
10. desember Miami – Orlando
Komið til Miami kl.07:00 og keyrt til Orlando þar sem við gistum í 2 nætur á Florida Mall Hotel.
11. desember Orlando
Í Orlando er hægt að versla eða fara í golf, skemmtigarða svo engum ætti að leiðast. Á hótelinu er sólbaðsaðstaða, verslunarmiðstöð og veitingstaðir.
12. desember – Heimferð
Farið út á flugvöll síðdegis og síðan heim með Icelandair og lent snemma að morgni 13. desember í Keflavík.
Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.