Gríska Eyjahafið frá Aþenu til Feneyja 27. ágúst – 8 sept 2026.
Flogið til London og áfram þaðan með British Airways til Aþenu. Gistum í þrjár nætur á Hotel Stanley, 4 stjörnu hóteli vel staðsettu nálægt Akrapolis og förum síðan í 7 nátta siglingu með NCL Pearl frá Aþenu (Pireus) þar sem komið er við í Santorini, Katakolon/Olympíu og Corfu í Grikklandi, Kotor í Svartfjallalandi, Split í Króatíu, Koper í Slóveníu og svo endað í Ravena (Feneyjum) þar sem siglingin endar. Ekið til Feneyja og þar gistum við í tvær nætur áður en við fljúgum heim með Icelandair beint frá Feneyjum.
Glæsiskipið Norwegian Pearl
Norwegian Pearl er glæsilegt skemmtiferðaskip.
- Þyngd: 93,530 brúttótonn
- Lengd: 294 metrar
- Breidd: Næstum 38 metrar
- Farþegar: Getur borið 2,344 farþega
- Áhöfn: 1,072 manns
- Byggt: 2006
- Endurbætur: Fór í mikla yfirhalningu árið 2021
Verð:
Verð á mann miðað við tvo í svalaklefa kr.795.000
Verð á mann miðað við tvo í innklefa kr. 630.000
| INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. More At Sea. Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gidlir fyrir allt að 3 saman í klefa. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa per höfn til að nota í skoðunarferðir. Safnast ekki upp ef ekki er notað. |
| EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
27. Ágúst – Fimmtudagur- Keflavík – Aþena
Flogið til London, brottför frá Keflavík kl.10:30 og lent í London kl.14:40. Brottför með British Airways frá Londona kl.19:10 og lent í Aþenu kl.00:50. Ekið til hótels Stanley sem er gott 4 stjörnu hótel vel staðsett eða skamt frá Akrapolis. Gistum þar í þrjár nætur.

Útiaðstaðan á Hotel Stanley

Tveggja mann herbergi á Hotel Stanley

28. – 29. Ágúst – Aþena
Notum dagana til að skoða Aþenu enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Einnig er gaman að kíkja á Acrapolis og fleiri staði í Aþenu. Höfuðborg Grikklands er full af sögu og fallegum minnisvörðum um þá sögu. Mikið og margt að skoða hér, Akrapolis, Plaka, Ólympíuleikvangurinn og margt fleira.

30. Ágúst- Sunnudagur- Siglingin hefst
Brottför frá hóteli um kl.11:00. Pearl leggur úr höfn klukkan 17:00.


31. Ágúst – Mánudagur – Santorini
Vörpum ankerum úti fyrir eynni kl 09:00 og dveljum þar til kl 19:00. Gaman að vera uppi á dekki þegar við nálgumst eyna. Mjög gaman að skoða sig um á Santorini en má búast við að það taki tíma að koma sér upp frá höfninni. Förum með kláfnum upp í Fira og röltum aðeins þar um.

1. September- Þriðjudagur – Katakolon/Olympia
Komið til Katakolon kl 09:00 og farið kl. 19:00. Lítill bær, aðeins um 500 íbúar, og tilvalið að fara upp í Olympíu hina fornu og skoða meðal annars staðinn þar sem ólympíueldurinn er kveiktur í aðdraganda Ólympíuleikanna. Í Katakolon er líka pínulítið safn sem vert er að skoða.


2. September – Miðvikudagur – Corfu í Grikklandi
Þá erum við komin til eyjunnar Corfu. Lagt að bryggju kl 07:00 og farið á ný kl 17:00. Fallegur bær og gaman að fara upp í gamla kastalann sem er þar.

3. September- Fimmtudagur- Kotor
Vörpum ankerum kl 07:30 og farið aftur kl 18:00. Falleg sigling inn að þessum bæ. Farið í land með léttabátum. Skemmtilegur lítill bær sem gaman er að rölta um.
![]()

4. September – Föstudagur -Split
Vörpum ankerum kl 07:00 og farið aftur kl 17:00. Split er sögufræg borg með marga áhugaverða staði, skemmtileg veitingahús og krár. Borgin er þekkt fyrir frábæra sjávarrétti og skemmtilegar krár. Einnig er ströndin afar falleg.
![]()
5. September – Laugardagur – Koper
Komið til Koper kl.08:00 og farið kl.19:00. Koper er fimmta stærsta borg Slóveníu. Staðsett í Istran héraðinu i suðvestur hluta landsins. Mjög skemmtileg borg og margt að skoða þar.

6. September – Sunnudagur – Siglingu lýkur
Komið til Ravena kl.06:00. Ekið til Mestre kl. 09:00 og á Hotel Ambasciatori, gott 4 stjörnu hótel vel staðsett í Mestre þar sem við gistum í tvær nætur. Farið verður í göngutúr um Feneyjar.



![]()
![]()
7. September – Mánudagur – Feneyjar (Mestre)
Notum dagana til að skoða Feneyjar enda margt og mikið að sjá í þeirri merku borg. Einnig er gaman að kíkja á Mestre, bæinn sem við gistum í.

8. September – Feneyjar – Keflavík
Flogið heim með Icelandair. Brottför kl.16:10 og lent í Keflavík kl.18:50.
Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Sula Travel er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.


























