Hawai Eyjar með Pride of Amerika
Brottför 11. nóvember og heimkoma 26. nóvember
Flogið með Icelandair til Seattle, gist þar í eina nótt og flogið til Honolulu. Þar gistum við í tvær nætur og siglinginn hefst 14. nóvember. Eftir sjö daga siglingu um eyjarnar gistum við tvær nætur í Honolulu, fljúgum til Seattle þar sem gist verður í eina nótt áður en flogið er heim með Icelandair og lent að morgni 26. nóvember.
Glæsiskipið Pride of America
Pride of America var smíðað árið 2005 og fékk síðustu yfirhalningu 2022. Það er 80.500 brúttótonn, 280 metra langt og 37 metra breitt. Farþegar eru 2.150 og í áhöfn eru 927. Um borð eru fjöldi veitingastaða, kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur um 800 manns í sæti. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.
Verð á mann miðað við tvo í svalaklefa kr. 980.000 og verð á mann miðað við tvo í innklefa kr. 890.000
INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelunum, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. More At Sea: Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gildir fyrir allt að 3 saman í klefa. |
EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
Additional information
Klefi | Tveggja manna inniklefi, Tveggja manna svalaklefi |
---|
11. nóvember Keflavík – Seattle
Flogið síðdegis með Icelandair til Seattle þar sem lent er kl. 21:10 að staðartíma. Ekið sem leið liggur á hótel
12. nóvember – Seattle – Honolulu
Flogið með Alaska Air til Honolulu og ekið til hótels í Honolulu.
13. nóvember – Honolulu
Frjáls dagur í Honolulu
14. Nóvember – Siglingin hefst
Brottför frá Honolulu kl. 17:00
15. nóvember – Kona
Komið til Kona kl. 07:00 og farið kl.17:00
16. nóvember Hilo
Komið til Hilo kl 07:00 og farið kl. 17:00
Eyjan er 83 ferkílómetrar og hér búa um 52.000 manns. Mikið um fallegar víkur og strendur og einstaklega gaman að snorkla og skoða kórala og litskrúðunga fiska. Komið þangað kl. 07:00 og farið á ný kl. 17:00.
17. Nóvember – Kahului Maui
Komið til Hahului Maus kl.08:00 og farið kl.17:00 daginn eftir.
18. Nóvember – Kahului Maui
Deginum varið í Kahului Maui og siglt úr höfn kl.17:00
19. nóvember – Nawilwli Kauai
Komið kl. 09:00 og farið kl.14:00 daginn eftir.
20. nóvember – Nawilwli Kauai
Siglt úr höfn kl.14:00
21. nóvember – Siglingu lýkur
Komið til Honalulu kl. 07:00 og ekið til hótels. Frjáls dagur í Honolulu.
22. Nóvember – Honolulu
Frjáls dagur í Honolulu. Mælum með að fara í skoðunarferð til Pearl Harbour.
23. Nóvember Honolulu
Í dag er flogið með Air Alaska til Seattle þar sem gist verður í eina nótt.
24. Nóvember Seattle – Keflavik
Flogið til Keflavíkur með Icelandair og lent að morgni 25. nóvember.
Farið frá hótelinu um kl. 15:00 og ekið upp á flugvöll. Farið í loftið kl. 19:00 og lent í Keflavík kl. 06:10 að morgni 1. desember.
Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.