Frá Reykjavík til Southampton 2 – 12 júlí.
Lagt af stað frá Skarfabakk kl 17:00, komið við á Ísafirði, Akureyri, Maloy í Noregi, Lerwich á Hjaltlandseyjum, Inverness í Skotlandi, Edinborg í Skotlandi áður en lagst er að bryggju í Southampton 12 júlí kl. 05:00. Ekið út á flugvöll og flogið heim með Icelandair. Möguleiki að lengja dvöl í Englandi.
Glæsiskipið Norwegian Star
Norwegian Star var smíðað árið 2008 og allt tekið í gegn 2021. Það er 91.740 brúttótonn, rúmir 294 m á lengd og 38 m á breidd. Farþegar eru 2.021 og í áhöfn eru 1.031 manns og siglingarhraði er 23 hnútar.
Verð á mann, miðað við tvo í svalaklefa er 740.000 og í innklefa 630.000
INNIFALIÐ: | Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, tíu nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé. More At Sea: Drykkjarpakki: Innfelur mikið úrval af áfengum drykkjum með örfáum undantekningum. Allir gosdrykkir og óáfengir drykkir innifaldir nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck. ATH: skattur getur lagst á drykkir og mat í sumum höfnum og fer sá kostnaður á reikning viðkomandi viðskiptavinar.Innifelur ekki Mini Bar í klefum, Connoisserur‘s Collection, léttvíns og vínkynningar eða sértilboð á bjórfötum. Allt vín og kokteilar eru bornir fram í glösum, bjór er borinn fram í glösum eða flöskum. Matarpakkinn: Út að borða á sérreknu veitingastöðunum: Svalaklefi: 7 daga sigling 3 sinnum út að borða, 8-11 daga sigling 4 sinnum út að borða og 12 dagar og meira 5 sinnum út að borða. Gildir fyrir allt að 3 í svalaklefa. Innklefi og Stúdío: 7 daga sigling: 1 sinni út að borða, 8-11 daga sigling: 2 sinnum út að borða og 12 dagar og lengra, 3 sinnum út að borða. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.Gildir fyrir allt að 3 saman í klefa. |
EKKI INNIFALIÐ: | Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær. |
Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.
02. júlí. Sigling hefst
Hittumst á Skarfabakka í hádeginu, innritum okkur í skipið og förum um borð. Prima leggur af stað kl 17:00.
03. júlí Ísafjörður
Komum til Ísafjarðar kl 07:00 og leggjum af stað á ný kl 17:00.
03. júlí. Akureyri
Leggjum að bryggju kl 06:30 og lagt í hann á ný kl 15:00.
05. júlí. Á siglingu
Nú er siglt yfir hafið áleiðis til Noregs. Um að gera að njóta þess sem skipið hefur upp á að bjóða og svo má auðvitað bara slappa af í sólbaði, eða í heilsulindinni.
06. júlí. Malöy
Koma til Malöy kl 11:30 og förum á ný kl 20:00.
07. júlí. Lerwick
Komið til Lerwick kl.10:30 og farið kl.19:30 í Noregi kl 08:00
08. júlí. Sigling
09. júlí. Inverness
10. júlí. Edinborg
11. júlí. Sigling
12. júlí. Siglingu lýkur
Komum til Southampton kl 05:00. Förum frá borði kl 09:00, beint út á flugvöll í London og heim með Icelandair.
Fararstjóri:
Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.
Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.
Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.