Brottför 22. febrúar og heimkoma 6. mars.

Karíbahafið með Escape

Flogið með Icelandair til Orlando síðdegis 22. febrúar og lent í Flórída klukkan 20:00 að staðartíma. Gist í tvær nætur á Florida Mall hótelinu, sem er gríðarlega vel staðsett. Ekið er frá hótelinu til Port Canaveal þar sem farið er um borð í Escape. Siglingin sjálf er sjö nátta og er komið við í Cozumel í Mexíkó, George Town á Cayman eyju, Ocho Rios á Jamaika og Great Stirrup Cay, lítilli eyju sem skipafélagið á.

Tveir dagar eru á siglingu, annar á leiðinni til Cozumel og hinn á leiðinni frá Jamaika til Great Stirrup Cay.  Komið er til Port Canaveral að morgni 2. mars og farið á hótelið þar sem við gistum í þrjár nætur. Síðan er farið frá hótelinu upp úr hádegi 5. mars upp á flugvöll og farið í loftið klukkan 18:00. Lent er í Keflavík snemma morguns 6. mars.

Glæsiskipið Norwegian Escape

Norwegian Escape var tekið í gegn í fyrra, en það var smíðað árið 2015. Það er tæplega 165.000 brúttótonn, 326 m á lengd og 55 metra breitt. Farþegar geta verið 4.266 og er Escape því það skip NCL sem tekur flesta farþega.  farþega. Áhöfnin telur 1.733 og siglingarhraði er 23 hnútar. Um borð eru um 10 veitingastaðir, mörg kaffihús, diskótek og barir, sundlaugar, heitir pottar, líkamsrækt, spa og leikhús sem tekur um 800 manns í sæti og margt fleira. Skipið er afar glæsilega innréttað og þar fer ákaflega vel um farþega.

Verð á mann í svalaklefa 495.000 kr. og verð á mann í innklefa 454.000 kr.

INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”. Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi. Matarpakkinn: tvisvar sinnum (innklefar og stúdíóklefar einu sinni) út að borða á sérstöku veitingastöðunum. WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð. Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir. Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.
EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

Flugvél - Icelandair

22. febrúar. Keflavík – Orlandó

Flogið síðdegis með Icelandair til Orlando þar sem lent er klukkan 20:05 að staðartíma. Ekið sem leið liggur á Florida Mall Hotel.

Flórída

23. febrúar – Orlandó

Frjáls dagur í Orlando en þar er nóg hægt að gera, fara í golf, einhvern hinna fjölmörgu skemmtigarða eða kíkja í verslunarmiðstöðina þar sem hótelið er.

24. febrúar – Sigling hefstHaldið frá hótelinu fyrir hádegi og ekið til Port Canaveral þar sem farið er um borð í Escape og lagt úr höfn klukkan 16:00

25. febrúar – Á siglingu

Við verðum á siglingu allan daginn og tilvalið að læra á skipið, skella sér í sund, í sólbað eða eitthvað annað sem fólki langar til…jafnvel í ræktina.

Cozumel

26. febrúar – Cozumel í Mexíkó

Cozumel eyjan er 10 kílómetra úti fyrir austurströnd Mexíkó. Hún er 48 kílómetra löng og 16 kílómetra breið þar sem hún er breiðust. Íbúar er rétt rúmlega 100.000 og þar af búa um 80.000 í San Miguel á vesturströnd eyjarinnar. Þetta er stærsta höfnin sem komið er til í þessari ferð og tilvalið að rölta í land og kíkja í miðbæinn. Gríðarlegur fjöldi verslana er á svæðinu þannig að allir ættu að geta fengið sér einhvern minjagrip frá Mexíkó. Komi þangað kl. 08:00 og farið kl. 16:00.

Grand Cayman

27. febrúar – George Town

Komið til eyjarinnar Cayman eyju og farið í land þar með léttabátum. Komið er í höfn klukkan 10:00 árdegis og onkerum létt klukkan 18:00.

Bob Marley - Jamaika

28. febrúar – Ocho Rios á Jamaika

Komið til Jamaica kl 09:00 og farið á ný kl 17:00. Hér er margt hægt að gera, til dæmis að fara í skemmtilega skoðunarferð til Seven Miles þar sem Bob Marley fæddist og bjó, snorkla eða kafa og svo mætti lengi telja.

29. febrúar – Á siglingu

Sólbað og þægilegheit um borð. Kannski skotist í gufu, heitan pott, farið í vínsmökkun eða að læra línudans. Ísbúðin er líka alltaf freistandi. Alltaf nóg um að vera um borð.

Fjör

1. mars – Great Stirrup Cay

Vörpum ankerum úti fyrir eynkaeyju skipafélagsins kl 08:00 og förum í land með léttabátum. Kokkar og þjónar fara líka í land með allt sitt hafurtask og skipskortið dugar hér fyrir mat og drykk, en einnig eru hér litlar verslanir með vörur fyrir ferðamenn.

Great Stirrup

2. mars – Siglingu lýkur

Lagst að bryggju í Port Canaveral kl 07:00. Förum frá borði upp úr kl 09:00 og ökum að Florida Mall hótelinu þar sem við gistum í þrjár nætur. Búðarráp, golf, skemmtigarðar eða hvað eina sem fólki dettur í hug.

Flórída

3. og 4. mars – Orlandó

Frjálsir dagar í Orlandó og nú er tilvalið að kíkja í verslunarmiðstöðina eða búðirnar í kring og gera góð kaup því það er svo sannarlega hægt að gera þarna.

Heimferð

5. mars – Heimferð

Farið frá hótelinu um klukkan 13:00 og ekið upp á flugvöll. Farið í loftið klukkan 17:45 og lent í Keflavík kl. 06:10 að morgni 6. mars.

Fararstjóri:

Fararstjóri í ferðinni er Lilja Jónsdóttir. Lilja menntaði sig í ferðamálafræðum í Bretlandi og lauk einnig námi Farastjórar erlendis frá Ferðmálaskóla Íslands 2010. Hún hefur starfað sem farastjori í skemmtisiglingum til fjölda ára og starfað með skipafélgöum eins og Royal Caribbean, Celebrity Cruises, Carnival Cruises og Norwegian Cruise Line. Hún hefur starfað á ferðaskrifstofum við sölu og skipulag á ferðum.

Sjá ummæli farþega hér.