Jólaferð með EPIC um Karíbahafið

Flogið til Orlando með Icelandair, gist í fjórar nætur fyrir siglinguna á Florida Mall hótelinu og síðan eina nótt þar eftir siglinguna. Siglt frá Port Canaveral í Flórída og komið við í Cozumel í Mexíkó,  George Town á Grand Caymaneyjum, Ocho Rios á Jamæku og endað á Great Stirrup Cay, sem er lítil eyja sem skipafélagið á og loks aftur til Port Canaveral.

Glæsiskipið Norwegian Epic

Norwegian Epic er eitt af stærstu skipum Norwegian Cruise Line, skipið er 155,873 brúttótonn, 329 metrar á lengd og tekur 4.100 farþega. Áhöfnin er 1.753 og ganghraði er 20 hnútar. Epic er glæsilegur farkostur þar sem smekkleg hönnun og lúxus er einkenni þessa. Það er hreint ævintýri að sigla með skipinu.

Verð á mann í svalaklefa 670.000 kr. og verð á mann í innklefa 625.000 kr.

 
INNIFALIÐ: Flug fram og til baka, allur akstur milli flugvallar, hótels og skips. Gisting með morgunverði á hótelinu, sjö nátta sigling, íslensk fararstjórn, fullt fæði í skipinu og öll skemmtidagskrá um borð og þjórfé.
Auk þessa velur hver klefi tvo af fjórum mismunandi “pökkum”.

Drykkjarpakki: Allir gosdrykkir, áfengir og óáfengir drykkir að 15$ innifalið, nema vatn á flöskum, nýkreistur aldinsafi og kaffi á Starbuck.  ATH Skattur getur lagst á drykki í sumum höfnum og þá fer sá kostanður á reikning viðkomandi.

Matarpakkinn: Út að borða á sérstöku veitingastöðunum: tvisvar sinnum fyrir gestir í svalaklefi og einu sinni fyrir gestir í innklefar og stúdíóklefar.

WiFi: 150 mínútur á þráðlausa netinu um borð.

Skoðunarferðapakki: 50 dollara inneign á klefa hvern dag til að nota í skoðunarferðir.

Ath. Þessir tveir pakkar af fjórum eru innifaldur í verði og það þarf að velja drykkjarpakkann til að allir drykkir séu innifaldir. Þetta gildir aðeins fyrir 2 farþega í hverjum klefa. Ef þriðji farþegi bætist í klefann þá eru þessir pakkar ekki í boði fyrir þann farþega.

EKKI INNIFALIÐ: Skoðunarferðir í landi á vegum skipafélagsins ef fólk fer í þær.

Lágmarks þátttaka er 16 manns og áskiljum við okkur rétt til að fella ferðina niður ef næg þátttaka fæst ekki. Verð á ferð er reiknað út frá gengi USD og EUR á kaupdegi ferðar en verð á ferð getur breyst ef breyting verður á gengi ISK gagnvart USD og EUR.

17. desember Keflavík – Orlandó

Flogið síðdegis með Icelandair til Orlando þar sem lent er klukkan 20:05 að staðartíma. Ekið sem leið liggur á Florida Mall Hotel.

Flórída hótel

18. – 20. desember

Frjáls dagar í Orlando en þar er nóg hægt að gera. Í verslunarmiðstöðinni Florida Mall eru um 270 verslanir auk fjölda veitingastaða. Góður sundlaugargarður er við hótelið auk þess sem stutt er í Premium Outlet þar sem hægt er að gera mjög góð kaup. Ekki má heldur gleyma hinum fjölmörgu skemmtigörðum sem eru í næsta nágrenni við hótelið og einnig eru margir flottir golfvellir á svæðinu.

Jól

21. desember – Siglingin hefst

Farið frá hótelinu um kl 11:00 og ökum til Port Canaveral þar sem við förum um borð í EPIC. Lagt úr höfn klukkan 17:30.

Norwegian - Epic

22. desember – Á siglingu

Á siglingu allan daginn og um að gera að njóta sín á sóldekkinu og horfa yfir til Kúbu og fleiri eyja sem við siglum framhjá.

Cozumel

23. desember – Cozumel í Mexíkó

Eyðum Þorláksmessu á Cozumel eyju sem er 10 kílómetra úti fyrir austurströnd Mexíkó. Hún er 48 kílómetra löng og 16 kílómetra breið þar sem hún er breiðust. Íbúar er rétt rúmlega 100.000 og þar af búa um 80.000 í San Miguel á vesturströnd eyjarinnar. Gríðarlegur fjöldi verslana er á svæðinu þannig að allir ættu að geta fengið sér einhvern minjagrip frá Mexíkó. Hér er líka hægt að fara að snorkla og skoða fiskana. Komið þangað kl 08:00 og farið kl 16:00.

Grand Cayman

24. desember – Grand Cayman

Komum til George Town á Gran Cayman eyju klukkan 10:00 að morgni og farið aftur klukkan 18:00 síðdegis. Njótum Aðfangadagss á stærsu eyju þriggja Cayman eyja og George Town er höfuðborgin. Eins og á öðrum stöðum sem við komum á er margt að sjá og skoða, rölta um bæinn, synda með skötum eða leggjast í sólbað á einhverri af fallegum ströndum eyjarinnar. Hér er farið í land með léttabátum.

Jamæka

25. desember, jóladagur – Jamæka

Komið til Ocho Rios á Jamæku klukkan 09:00 að morgni Jóladags og farið þaðan klukkan 17:00 síðdegis. Hér er margt að sjá, fjölmargar fallegar strandir, handverksbúðir ýmiskonar og einnig hægt að skoða fallega fossa og Níu mílur, fæðingastað Bob Marleys.

Lamb

26. desember – Á siglingu

Njóta lífisins um borð, hvort heldur það er í nuddi, sólbaði, heitu pottunum, á einhverju námskeiði eða inn á bókasafni með góða bók.

Great Stirrup

27. desember – Great Stirrup Cay

Komið til Great Stirrup Cay, eyju sem NCL á, kl 08:00 og farið á ný kl 17:00. Farið í land með léttabátum og hér er gott að snorkla og slappa síðan af á ströndinni. Kokkar og þjónar skipsins koma hér í land og skipskortið gildir fyrir mat og drykk.

Florida

28. desember – Siglingu lýkur

Lagst að bryggju í Port Canaveral kl 07:00. Ekið til Orlando þar sem gist verður eina nótt á Florida Mall hótelinu. Þangað er komið upp um hádegi þannig að dagurinn nýtist vel.

Heimferð

29. desember – Heimferð

Farið frá hótelinu eftir hádegi og flogið heim klukkan 17:45. Lent í Keflavík klukkan 06:05 að morgni 30. desember.

Fararstjóri:

Skúli Unnar Sveinsson - Fararstjóri

Fararstjóri í ferðinni er Skúli Unnar Sveinsson. Skúli er stjórnmálafræðingur að mennt, starfaði lengi við blaðamennsku og við leiðsögn hjá Samvinnuferðum og Terra Nova á árum áður.

Skúli hefur mikla reynslu af því að sigla með hópa í skemmtisiglingum enda er oft sama fólkið að sigla með honum ár eftir ár.

Ánægðir viðskiptavinir Norrænu Ferðaskrifstofunnar er okkar aðalmarkmið og leggjum við metnað okkar í að vanda til verka og bjóða aðeins ferðir í hæsta gæðaflokki.

Sjá ummæli farþega hér.

Kort

Epic Burn the Floor
Epic Balcony State room
Epic Climbing Wall Couple
Epic O Sheehans
Epic Le Bistro
Epic Moderno
Epic Courtyard
Epic Fitness
Epic Atrium Café
Epic Inside State room
Epic Aqua Park Family Splash
Epic Aqua
0Epic The Manhattan Room
Epic Ice Bar
Epic Deluxe Owners Suite Living Room
Epic Ultra Lounge